Ríkisstjóri Suður-Karólínu hefur valið Darline Graham Nordone til að taka við þingsæti Lindseys Grahams í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Nordone er systir Grahams en hann lést á laugardagskvöld eftir rof á slagæð. Hún mun sitja sem staðgengill bróður síns í öldungadeildinni fram að lokum kjörtímabilsins á næsta ári.
Embættismenn í Washington, þar á meðal Donald Trump Bandaríkjaforseti, höfðu mælst til þess að Nordone yrði skipuð sem staðgengill sem virðingarvottur við Graham. Hann var ókvæntur og barnlaus.
Nordone sagði það mikinn heiður að fylla í skarð bróður síns. Hann hefði alltaf verið til staðar fyrir sig og nú gæti hún verið til staðar fyrir hann.
Graham ættleiddi systur sína eftir fráfall foreldra þeirra
Systkinin misstu foreldra sína þegar þau voru ung að árum. 15 mánuðir liðu á milli andláts foreldranna. Graham var þá 22 ára en Nordone 13. Hún fluttist til ættingja en sambandið á milli systkinanna var sterkt. Á þessum árum lagði Graham stund á laganám og gegndi herþjónustu í flugher Bandaríkjanna.
„Hann er eins og bróðir, faðir og móðir allt í senn,“ sagði Nordone um bróður sinn í viðtali við New York Times 2015.
Eftir að Graham hóf störf fyrir herinn ættleiddi hann systur sína. Það gerði hann til að tryggja að hún gæti þegið bætur frá hernum ef eitthvað myndi henda hann.