Taxý Hönter segist vera mættur aftur af fullum krafti í baráttuna gegn því sem hann kallar óreiðu í leigubílabransanum og óskar nú eftir fjárhagslegum stuðningi frá fylgjendum sínum til að geta sinnt umfjöllun sinni af fullum krafti.
Í nýlegri færslu á X segist hann hafa misst trú á nýju breytingunum sem tóku gildi á lögum um leigubílaakstur og telur þær ekki leysa þann vanda sem hann segir hafa grasserað í greininni undanfarin ár.
„Það hefur runnið upp fyrir mér síðustu vikurnar að breytingarnar sem taka gildi í dag gera lítið sem ekkert til að laga ástandið,“ skrifar hann.
Með nýju lögunum er Taxý Hönter að vísa til breytinga á lögum um leigubílaakstur sem tóku gildi 1. júní. Breytingarnar fela meðal annars í sér að leigubílstjórar þurfa á ný að vera skráðir hjá leigubifreiðastöð og að stöðvarnar bera aukna ábyrgð á skráningu og eftirliti með akstri.
Hann segist hafa ákveðið að draga úr annarri vinnu og verja meiri tíma í að rannsaka og fjalla um mál tengd leigubílarekstri.
„Ég get ekki sinnt þessu öllu á hlaupum og ég get ekki sinnt þessu einn,“ segir hann og biður fólk um fjárhagsaðstoð svo hann geti sinnt síðunni virka daga vikunnar.
Segir nýtt mál komið upp á Keflavíkurflugvelli
Samhliða beiðni sinni um stuðning birti Taxý Hönter nýjar upplýsingar um ástandið á leigubílastæði Keflavíkurflugvallar.
Þar fullyrðir hann að eigandi Hitch Taxi hafi látið lögreglu hafa afskipti af eldri konu sem tók mynd af leigubílastæðinu. Hann segir konuna hafa ekið inn á laust stæði án þess að vita af deilum sem þar væru í gangi.
Taxý Hönter hefur áður sakað Hitch Taxi um að nota merki sem líkist merkjum Hreyfils og segist hann hafa ítrekað bent stjórnvöldum, Isavia, lögreglu og fjölmiðlum á málið án árangurs.
Segir nóg af efni bíða vinnslu
Taxý Hönter segir að hann sitji á miklu magni myndefnis og ábendinga sem eigi eftir að vinna úr.
„Það er nóg til af uppsöfnuðu myndefni og sögum til að henda í færslu á hverjum degi og slatti af vísbendingum og málum sem ég get kafað dýpra í,“ skrifar hann.
ÉG ÓSKA EFTIR FJÁRSTUÐNINGI AFTUR, DÝRLINGURINNN GRIPINN AFTUR MEÐ UPPSPRENGT STARTGJALD, PALESTÍNUMAÐUR Í FREKJUKASTI SIGAR LÖGGUNNI Á ÖMMU Á SUÐURNESJUNUM, JÁ OG SVO VIL ÉG ÓSKA ÞJÓÐINNI TIL HAMINGJU MEÐ ALGJÖRLEGA GAGNLAUSAR BREYTINGAR Á LEIGUBÍLALÖGUNUM Í BOÐI INNVIÐARÁÐHERRA… pic.twitter.com/F5s0kg9YL6
— Taxý Hönter (@fridrikeinarss1) June 1, 2026