Umdeildur áhrifavaldur, Andrew Tate, og bróðir hans, Tristan Tate, voru handteknir í Miami í gær. Bresk yfirvöld létu handtaka þá vegna kynferðisbrota, mansals og fleiri brota sem þeir eru grunaðir um á árunum 2010 til 2017 og hafa óskað eftir því að þeir verði framseldir til Bretlands.
Bræðurnir eru ákærðir fyrir nauðganir, kynferðisbrot, mansal og barnaklám. Þetta eru nýjar ákærur á bræðurna og bætast við eldri ákærur en ríkissaksóknari í Bretlandi gaf út ákæru í 21 lið á hendur bræðrunum á síðasta ári.
Lögregluyfirvöld segja þolendur þeirra vera samtals sjö talsins. Bræðurnir eru einnig ákærðir fyrir skattsvik og peningaþvætti í Bretlandi.
Bræðurnir hafa ávallt neitað sök. Lögfræðingur þeirra sagðist vongóður um að þeim yrði sleppt úr varðhaldi í Bandaríkjunum þegar dómari væri búinn að fara yfir málið.
Kvenhatari á flótta undan réttvísinni
Andrew er 38 ára áhrifavaldur sem lýsir sjálfum sér sem kvenhatara og náði mikilli frægð með ráðleggingum sínum til ungra manna og drengja um karlmennsku. Bræðurnir voru fyrst handteknir í Rúmeníu árið 2022 sakaðir um mansal og nauðgun. Til stóð að Andrew yrði framseldur til Bretlands þegar mansalsmáli á hendur honum yrði til lykta leitt í Rúmeníu.
Það kom þó ekki til þess því réttarhöld yfir þeim höfðu ekki enn farið fram í Rúmeníu þegar bræðurnir yfirgáfu landið í trássi við farbann í febrúar á síðasta ári og fóru til Bandaríkjanna. Bræðurnir eru með tvöfaldan ríkisborgararétt í Bandaríkjunum og Bretlandi.