„Takmörk fyrir því hvað er hægt að leggja miklar álögur á ferðamenn“

„Takmörk fyrir því hvað er hægt að leggja miklar álögur á ferðamenn“

„Takmörk fyrir því hvað er hægt að leggja miklar álögur á ferðamenn“

Gjaldtaka hófst á miðnætti um nýju brúna yfir Hornafjarðarfljót. Hún var tekin í notkun 24. júní og hefur verið gjaldfrjálst að aka um hana síðan þá. Nú kostar 1500 krónur að aka yfir brúna. Veggjöldin eiga að standa undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, sem kostaði tíu milljarða. Hámarksgjald fyrir akstur yfir brúna er 18.750 krónur á mánuði eða 225.000 krónur á ári.

Gjaldtakan er sjálfvirk og gengur það ágætlega að mati forstjóra Bílaleigu Akureyrar sem rukkar viðskiptavini sína eftir á.

„Þetta kemur beint í gegnum miðlægan gagnagrunn, þá kemur þetta beint inn í okkar kerfi. Það er að segja ef viðskiptavinur greiðir ekki þá kemur þetta, innan ákveðinna klukkutíma, beint inn á okkar kerfi og þar með inn á leigusamninginn hjá viðkomandi. Það sem er stór hluti af vandanum hjá okkur er að við erum orðnir svo miklir innheimtumenn fyrir ríkissjóð að hálfa væri nóg og það lendir alltaf eitthvað á okkur,“ segir Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar.

Bílaleigur landsins rukka þó nokkuð af gjöldum eftir á. Þar nefnir hann sem dæmi bílastæðagjöld eða hraðasektir sem ferðamenn fá. Þá hefur bæst ofan á kílómetragjaldið og nú þessar sjálfvirku gjaldtökur í Vaðlaheiðargöngum og við Hornafjarðarfljót. Þá er útlit fyrir að einnig verði rukkað yfir brúna yfir Ölfusá þegar hún verður tilbúin.

„Það eru auðvitað takmörk hvað er hægt að leggja miklar álögur á ferðamenn endalaust. Og í þessu tilfelli líka takmörk fyrir því hvað er hægt að leggja á í kostnað á bílaleigur landsins að þær taki á sig. Bæði fyrir utan beinan kostnað af því sem innheimtist ekki af viðskiptavinum þá er gríðarlega mikil vinna sem fer í þetta líka.“

Auka kostnaður upp á næstum 30.000 krónur fyrir ferðamenn

Steingrímur telur að aukakostnaður fyrir ferðamann sem ætlar að keyra hringinn í kringum landið gæti numið allt að 30.000 krónum þegar byrjað verður að rukka fyrir Ölfusárbrú. Kílómetragjaldið er um 20.000 krónur og þá kostar rúmlega 2200 krónur í Vaðlaheiðargöng og 1500 krónur yfir Hornafjarðarfljót. Óvíst er hvað mun kosta yfir Ölfusárbrúna. Samkvæmt vef Vegagerðarinnar og Stjórnarráðsins eiga veggjöld að standa straum af 50% af kostnaði við framkvæmdir á borð við þær fyrrnefndu. Áætlað er að brúin yfir Ölfusá kosti 18 milljarða. Framkvæmdirnar við Hornafjarðarfljót kostuðu um tíu milljarða.

Hluti af þessum kostnaði komi alltaf til með að falla á bílaleigurnar:

„Kílómetraskatturinn er búinn að kosta gríðarlegar fjárhæðir í okkar tilfelli og mikla vinnu og ekki séð fyrir endann á því ennþá. Við erum að rukka kílómetraskattinn, rukka bílastæðagjöldin hér og þar og alls staðar. Og nú erum við að rukka þetta innviðagjald. Það sem er sammerkt með þessum gjöldum og innheimtu er hækkaður ferðakostnaður við að koma til landsins.“

Samstarf við Vegagerðina gott

Steingrímur gagnrýnir fyrirvarann á þessum gjöldum sem og upplýsingagjöf til ferðafólks. Ekki sé hægt að bæta útskýringum um hin ýmsu gjöld og tolla á starfsfólk Höldurs í Keflavík, þar sem langar raðir myndast oft og þarf að hafa hraðar hendur við afgreiðslu bíla:

„Það er mjög mikil vinna sem fer í að útskýra þetta fyrir fólki. Við getum ekki farið í gegnum þetta á afgreiðsluborðinu í Keflavík sem dæmi því það myndi tefja afgreiðsluna um fleiri, fleiri mínútur og það eru nú þegar fyrir langar biðraðir og ekki verður þetta bætandi á. Það þarf að koma þessum upplýsingum til skila fyrr, áður en kúnninn kemur til landsins og svo með góðum upplýsingum og merkingum á þessum stöðum. Við höfum átt mjög gott samstarf við Vegagerðina sem eru öll af vilja gerð til þess að vinna hlutina vel.“

Þá segir hann að fyrirvarinn hefði mátt vera meiri frá stjórnvöldum. Að hans sögn var þetta samþykkt á þingi rétt fyrir sumarfrí og gjaldtakan er hafin:

„Þetta er alltof stuttur fyrirvari til þess að tilkynna okkar samstarfsaðilum því við erum að vinna með þeim 12-18 mánuði fram í tímann. En ég er bara bjartsýnn á að það takist að vinna þetta vel en öllum svona málum þarf að gefa meiri fyrirvara en verið er að gera.“

#fyrir #hvað #hægt #takmörk #því


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-01-takmork-fyrir-thvi-hvad-er-haegt-ad-leggja-miklar-alogur-a-ferdamenn-485775

📰 Aðrar fréttir

Þor­gerður sinnir starfi sveitar­stjóra í eitt ár - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 0
Þor­gerður sinnir starfi sveitar­stjóra í eitt ár - Vísir
Þetta kemur fram í fundargerð hreppsnefndar sem BB greinir frá og sömuleiðis að starfshlutfall hennar verði einungis sextíu prósent. Um sextíu manns b...
Sprengjur nærri spenni­stöð - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 0
Sprengjur nærri spenni­stöð - Vísir
Engan mun hafa sakað við sprenginguna. Lögreglan er með málið til rannsóknar en sprengjusérfræðingar sáust á svæðinu í dag. Í frétt Spiegel segir að s...
Andar­nefja í andar­slitrunum á Djúpa­vogi - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 0
Andar­nefja í andar­slitrunum á Djúpa­vogi - Vísir
„Við erum tvö í hvalabjörgunarsveit Djúpavogs, nýstofnaðri,“ segir Íris Birgisdóttir, æðarbóndi á Djúpavogi, í samtali við fréttastofu.  Íris hefur ve...
Mel Gibson aftur í klandri: „Stundum gerir maður heimskulega hluti“
📅 01.09.2026 👁️ 0
Mel Gibson aftur í klandri: „Stundum gerir maður heimskulega hluti“
Stórleikarinn Mel Gibson hefur fengið á sig harða gagnrýni eftir að hann virðist herma eftir táknmálstúlki þegar hann kom fram á hátíð í Kanada um hel...
Guðmundur Einarsson skrifar: Árnaðaróskir frá öfgaflokkum
📅 01.09.2026 👁️ 0
Guðmundur Einarsson skrifar: Árnaðaróskir frá öfgaflokkum
RÚV skýrði frá því á sunnudagsmorgninum að tveir evrópskir flokksleiðtogar hafi óskað Íslendingum til hamingju með niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunn...
Ein lang­lífasta tón­listar­há­tíð landsins hefst í sau­tjánda sinn - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 0
Ein lang­lífasta tón­listar­há­tíð landsins hefst í sau­tjánda sinn - Vísir
Í ár kemur mikill fjöldi listamanna fram á hátíðinni. Þarna koma saman ólíkir listamenn frá tilraunakenndum listamönnum til klassískrar listamanna, þa...
Fer yfir allt sem klikkaði hjá Já-liðum - „Engin ástríða“
📅 01.09.2026 👁️ 0
Fer yfir allt sem klikkaði hjá Já-liðum - „Engin ástríða“
Árni Snævarr fyrrum fréttamaður og nú upplýsingarfulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum nefnir í athyglisverðum pistli fjölda atriða sem hann telur hafa fari...
Nýjar vendingar í máli Skúla Tómasar læknis - Frávísun héraðsdóms á manndrápsákæru felld úr gildi
📅 01.09.2026 👁️ 0
Nýjar vendingar í máli Skúla Tómasar læknis - Frávísun héraðsdóms á manndrápsákæru felld úr gildi
Birtur var rétt í þessu á vef dómstólanna úrskurður Landsréttar þar sem úrskurður Héraðsdóms Reykjaness um frávísun á ákæru á hendur Skúla Tómasi Gunn...
Síbrotamaður vill bæta ráð sitt – „Ég læt kasta molotov sprengju í húsið hjá þér“
📅 01.09.2026 👁️ 0
Síbrotamaður vill bæta ráð sitt – „Ég læt kasta molotov sprengju í húsið hjá þér“
Tvítugur maður var þann 26. ágúst, í Héraðsdómi Reykjavíkur, sakfelldur fyrir urmul afbrota, meðal annars þjófnaði, fíkniefnalagabrot, vopnalagabrot, ...
Má rétta yfir Skúla vegna andláts sjúklings
📅 01.09.2026 👁️ 0
Má rétta yfir Skúla vegna andláts sjúklings
Má rétta yfir Skúla vegna andláts sjúklings Lands­rétt­ur felldi úr gildi úr­skurð Hér­aðs­dóms Reykja­ness yf­ir Skúla Tóm­as­syni vegna and­láts sjú...
Báðar fylkingar eyddu milljónum í sam­félags­miðla­aug­lýsingar - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 0
Báðar fylkingar eyddu milljónum í sam­félags­miðla­aug­lýsingar - Vísir
Umsvifamest í auglýsingakaupum á miðlum Meta var Áfram Ísland, hreyfing sem barðist gegn aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hún eyddi rúmum 3,9 mill...
Landsréttur fellir frávísun á máli Skúla Tómasar úr gildi
📅 01.09.2026 👁️ 0
Landsréttur fellir frávísun á máli Skúla Tómasar úr gildi
Landsréttur felldi á fimmtudag úr gildi rúmlega mánaðargamlan úrskurð Héraðsdóms Suðurnesja þess efnis að manndrápsmáli gegn lækninum Skúla Tómasi Gun...
€45,000 boat stolen from Mogán marina found drifting at sea
📅 01.09.2026 👁️ 0
€45,000 boat stolen from Mogán marina found drifting at sea
Police have identified two men suspected of stealing a boat worth around €45,000 from a marina in Mogán, Gran Canaria, before it was later discovered ...
Banaslysið hefur djúp áhrif á samnemendur
📅 01.09.2026 👁️ 0
Banaslysið hefur djúp áhrif á samnemendur
Banaslysið hefur djúp áhrif á samnemendur Nem­end­ur í Mennta­skól­um við Sund eru í áfalli eft­ir að skóla­syst­ir þeirra lést í bíl­slysi um helg­in...
Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 0
Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman - Vísir
Skúli Tómas var ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn vegna andláts konu sem lést í umönnun hans á Heilbrigðisstofnun Suðurn...
Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 0
Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg - Vísir
Ekki stendur til að loka fyrir umferð um svæðið á þessum tíma en notast verður við hjáleiðir fyrir akandi, hjólandi, gangandi og almenningssamgöngur. ...
Hvalreki við Djúpavog
📅 01.09.2026 👁️ 0
Hvalreki við Djúpavog
Andanefju rak á land á ströndum Brandsvíkur við Djúpavog á Austurlandi í dag. Hún er á lífi en þó særð. Vonir standa til að hægt verði að koma henni a...
Watch: Norway's new king Haakon VIII takes oath as mourners pay respects to Harald V
📅 01.09.2026 👁️ 0
Watch: Norway's new king Haakon VIII takes oath as mourners pay respects to Harald V
Norway's new King takes the first major step of his reign as his father, the late King Harald V, lies in state at the Royal Palace.
Framkvæmdir hafnar við Borgarlínu við Nauthólsveg
📅 01.09.2026 👁️ 1
Framkvæmdir hafnar við Borgarlínu við Nauthólsveg
Vinna er hafin við að byggja upp innviði fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík. Breikka á Nauthólsveg og koma þar fyrir sérrými fy...
Skorar á stjórnmálafólk „sem þykir vænt um börn“ að endurskoða breytingarnar
📅 01.09.2026 👁️ 1
Skorar á stjórnmálafólk „sem þykir vænt um börn“ að endurskoða breytingarnar
Starfsfólk félagsmiðstöðva mótmælti skipulagsbreytingum Reykjavíkurborgar á skóla- og frístundasviði við ráðhúsið í morgun. Frístundamiðstöðvarnar Brú...
Segir Brynjar saka sig að ósekju um að vega að tjáningarfrelsinu - „Krafan um að menn segi satt og svari fyrir orð sín“
📅 01.09.2026 👁️ 0
Segir Brynjar saka sig að ósekju um að vega að tjáningarfrelsinu - „Krafan um að menn segi satt og svari fyrir orð sín“
Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor var afar virkur í að hvetja kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslunni um helgina til að segja já. Brynjar Níelsson bo...
Nýjum konungi fagnað með lúðraþyt
📅 01.09.2026 👁️ 1
Nýjum konungi fagnað með lúðraþyt
Hákon áttundi sór í morgun eið sem næsti Noregskonungur. Þar með hefur hann formlega tekið við völdum af föður sínum, Haraldi, sem lést á föstudag. At...
Arnór rýnir í dularfulla Moskvuferð CIA-forstjórans – Þetta gæti hafa verið erindið
📅 01.09.2026 👁️ 1
Arnór rýnir í dularfulla Moskvuferð CIA-forstjórans – Þetta gæti hafa verið erindið
Arnór Sigurjónsson, sérfræðingur í varnarmálum, telur margt benda til þess að John Ratcliffe, forstjóri bandarísku leyniþjónustunnar CIA, hafi borið a...
Klaufskar löggur, kvartanir yfir kyn­lífi og kúkur á húddi - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Klaufskar löggur, kvartanir yfir kyn­lífi og kúkur á húddi - Vísir
Áhorfendum er fylgt gegnum þáttaröðina af lögreglumönnum sem takast á við skrautleg verkefni sem hafa ratað í dagbók lögreglu í gegnum tíðina. Á milli...
Svekktir og reiðir stjórn­endur komu saman við Ráð­húsið - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Svekktir og reiðir stjórn­endur komu saman við Ráð­húsið - Vísir
Valgeir Þór Jakobsson, varaformaður fagdeildar Frítímans, segir í samtali við Vísi að tilgangur samstöðufundarins hafi verið að ræða aðgerðir borgarin...
ESB setur ströngustu reglur á ChatGPT, Reddit og Roblox samkvæmt ritskoðunarlögum
📅 01.09.2026 👁️ 1
ESB setur ströngustu reglur á ChatGPT, Reddit og Roblox samkvæmt ritskoðunarlögum
ESB setur ströngustu reglur á ChatGPT, Reddit og Roblox samkvæmt ritskoðunarlögum Fréttin1. september 2026Erlent, Evrópusambandið, RitskoðunLeave a Co...
„Enn ein lygin“ segir mexíkóskur þingmaður sem Bandaríkin ákæra fyrir fíkniefnamisferli
📅 01.09.2026 👁️ 0
„Enn ein lygin“ segir mexíkóskur þingmaður sem Bandaríkin ákæra fyrir fíkniefnamisferli
„Enn ein lygin“ segir mexíkóskur þingmaður sem Bandaríkin ákæra fyrir fíkniefnamisferli Banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­ið ákærði mexí­kóska þing­mann...
Huge crowds cheer on first wacky car race in Lanzarote
📅 01.09.2026 👁️ 1
Huge crowds cheer on first wacky car race in Lanzarote
Yaiza welcomed its first soapbox race on Sunday, as 11 homemade vehicles raced through the town centre in front of an enthusiastic crowd.The 500-metre...
Sexual assaults in Ceuta happening almost every day, prosecutors say
📅 01.09.2026 👁️ 1
Sexual assaults in Ceuta happening almost every day, prosecutors say
Most migrants have returned to neighbouring Morocco, but as many as 5,000 remain in the Spanish exclave.
Komugjald lagt á: „Þetta er auð­vitað ekkert annað en skatt­lagning“ - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Komugjald lagt á: „Þetta er auð­vitað ekkert annað en skatt­lagning“ - Vísir
Í dag varð sú breyting að komugjald leggst ofan á þá upphæð sem fólk sem sækir þjónustu sjúkraþjálfara þarf að reiða fram. Komugjaldið er 1.500 krónur...
Notuðu sprengju til að skemma raforkulínu
📅 01.09.2026 👁️ 1
Notuðu sprengju til að skemma raforkulínu
Skemmdarverk voru unnin á rafmagnslínum nærri orkuveri í Jaenschwalde í Þýskalandi í dag. Ein sprengja sprakk og aðrar fundust ósprungnar á vettvangi....
Hlutum var varpað inn á lóð Bjarna: „Sumir telja sig alltaf ná að handleika sannleikann og réttlætið“
📅 01.09.2026 👁️ 1
Hlutum var varpað inn á lóð Bjarna: „Sumir telja sig alltaf ná að handleika sannleikann og réttlætið“
„Menn þurfa að byggja upp skráp til að taka þátt í þessu. Auðvitað er langæskilegast eftir kosningar að fólk fái að njóta þess að hafa fengið umboð og...
Trump says US position on Falklands 'one of many' under review
📅 01.09.2026 👁️ 1
Trump says US position on Falklands 'one of many' under review
The UK says Falkland islanders "are British with a right to determine their own future".
Hlýjasta sumar í Bretlandi frá upphafi mælinga
📅 01.09.2026 👁️ 1
Hlýjasta sumar í Bretlandi frá upphafi mælinga
Hlýjasta sumar í Bretlandi frá upphafi mælinga Ann­að ár­ið í röð mæl­ist sum­ar­hiti í Bretlandi hærri en nokkru sinni fyrr. Heitasta sumar frá uppha...
Af­þakkar Grammy-tilnefningu - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Af­þakkar Grammy-tilnefningu - Vísir
Fimmta breiðskífa Larsson Midnight Sun náði gríðarlegum vinsældum um allan heim og nældi söngkonan sér í fjölda nýrra aðdáenda. Sumir hafa lýst þessu ...
Kveiktu eld í mosku Palestínumanna
📅 01.09.2026 👁️ 1
Kveiktu eld í mosku Palestínumanna
Kveiktu eld í mosku Palestínumanna Ísra­elsk­ir land­nem­ar van­helga mosk­ur Palestínu­manna. „Lít­il spreng­ing varð sem olli elds­voða inni í mosku...
SÁÁ missir for­stjóra og yfir­lækni - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
SÁÁ missir for­stjóra og yfir­lækni - Vísir
Stjórn SÁÁ gerði starfslokasamning við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ, í síðasta mánuði. Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferða...
Skemmdarverk unnin á vinnuvélum: „Einhverjir sem þurfa virkilega á aðstoð að halda“
📅 01.09.2026 👁️ 1
Skemmdarverk unnin á vinnuvélum: „Einhverjir sem þurfa virkilega á aðstoð að halda“
Starfsmönnum G. Hjálmarssonar á Akureyri brá heldur betur í brún í morgun þegar þeir mættu til vinnu. Tvær beltagröfur og einn vörubíll sem fyrirtækið...
Skemmdarverk á vinnuvélum: „Einhverjir sem þurfa virkilega á aðstoð að halda“
📅 01.09.2026 👁️ 1
Skemmdarverk á vinnuvélum: „Einhverjir sem þurfa virkilega á aðstoð að halda“
Starfsmönnum G. Hjálmarssonar á Akureyri brá í brún þegar þeir mættu til vinnu í morgun. Tvær beltagröfur og vörubíll sem fyrirtækið á voru skemmd í n...
Rætt við vitni að slysinu á Krýsuvíkurvegi
📅 01.09.2026 👁️ 1
Rætt við vitni að slysinu á Krýsuvíkurvegi
Ungmennin þrjú sem létust í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags voru ungur maður fæddur árið 2005 og tvær stúlkur fæddar 2007 og 2009.Þetta ...
Norð­austur­land fær loks langþráðan veg - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Norð­austur­land fær loks langþráðan veg - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar var fjallað um veginn milli Þórshafnar og Bakkafjarðar en sveitarfélögin voru sameinuð árið 2006. Þá varð til Langanesbyggð og nú...
Hákon sór em­bættis­eið - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Hákon sór em­bættis­eið - Vísir
Embættiseiður norska konungsins snýst um að hann heiti því að þjóna konungsríkinu í samræmi við stjórnarskrá þess og lög. „Drottningin og ég staðfestu...
Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum - Vísir
„Við erum að vinna þarna að uppfyllingu Móahverfis, uppbyggingu á nýju íbúðahverfi, og erum búin að vera þarna og erum í öðrum áfanga hverfisins og er...
Sakar þingmann Sjálfstæðisflokksins um ofbeldi í skjóli tjáningarfrelsis
📅 01.09.2026 👁️ 1
Sakar þingmann Sjálfstæðisflokksins um ofbeldi í skjóli tjáningarfrelsis
Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður Pírata, sakar Jón Pétur Zimsen, þingmann Sjálfstæðisflokks, um ofbeldi í formi gaslýsingar, en þingmaðurinn he...
Starmer segir af sér þingmennsku
📅 01.09.2026 👁️ 1
Starmer segir af sér þingmennsku
Keir Starmer ætlar að segja af sér sem þingmaður og einbeita sér að alþjóðamálum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá honum í dag.Starmer er þingmaður ...
Miley losar sig við eftir­nafnið - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Miley losar sig við eftir­nafnið - Vísir
Nafnabreytinguna má sjá á bæði Instagram-síðu tónlistarkonunnar og á vefsíðu hennar. Notendanafn hennar á Instagram er núna einfaldlega @miley í stað ...
Rætt við vitni að bana­slysinu og eldri borgarar ó­sáttir með skatta­hækkun - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Rætt við vitni að bana­slysinu og eldri borgarar ó­sáttir með skatta­hækkun - Vísir
Formaður félags eldri borgara segir að nýlögð komugjöld á þá sem þurfa að sækja þjónustu sjúkraþjáfara séu ekkert nema skattlagning á viðkvæman hóp í ...
Matarverð stendur hér um bil í stað
📅 01.09.2026 👁️ 1
Matarverð stendur hér um bil í stað
Verð á matvælum og annarri dagvöru stóð hér um bil í stað milli júlí og ágúst, samkvæmt mælingum verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands.Vöruverð hæk...
Fleiri bílar á vett­vangi og hrað­akstur til skoðunar - Vísir
📅 01.09.2026 👁️ 1
Fleiri bílar á vett­vangi og hrað­akstur til skoðunar - Vísir
Lögreglu barst tilkynning um slysið eftir miðnætti aðfaranótt mánudags um að að bíll hefði hafnað utan vegar rétt sunnan við gatnamót Krýsuvíkurvegar ...
Keir Starmer announces he is standing down as MP
📅 01.09.2026 👁️ 1
Keir Starmer announces he is standing down as MP
The former prime minister said he would now turn his focus to international affairs.