Uppselt er á vináttuleik karlalandsliða Íslands og Japans í Tókýó sem fram fer á sunnudaginn.
Heimavöllur Japana tekur rétt tæplega 68.000 manns og verður hvert sæti fullt en Japan er á fullu í undirbúningi fyrir lokamót HM í sumar.
Flautað verður til leiks klukkan 10.25 að íslenskum tíma.
Íslenska liðið leikur síðan við það argentínska í Alabama 10. júní.