Það skiptust á skin og skúrir í kosningavökum beggja fylkinga í gærkvöldi. Nýjar tölur gáfu báðum fylkingum von um að hafa sigur í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Úr því svo mjótt var á munum voru taugarnar þandar á báða bóga.
Gestirnir dreifðu huganum í spjalli við samherja í baráttunni, við drykkju eða í dansi við dynjandi tónlist.
Ari Páll Karlssonm ljósmyndari RÚV, flakkaði á milli kosningavaka og fangaði stemninguna. Þegar skellt var í lás á kosningavökunum upp úr klukkan tvö var enn óljóst hvernig færi.
Það var ekki bara lítill munur á því hvernig fólk greiddi atkvæði í gær, heldur skildi lítið að milli kosningavakanna sjálfra. Báðar vökurnar fóru fram í miðbæ Reykjavíkur; Já-liðar í Hafnarhúsinu að Tryggvagötu 17 og Nei-liðar í Kolaportinu að Tryggvagötu 19 – í næsta húsi við.