Það er ljóst að spennandi nótt er fram undan í þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið.Nú þegar klukkan nálgast miðnætti liggja fyrir fyrstu tölur úr fimm kjördæmum og hafa rúmlega 67 þúsund atkvæði verið talin.Já segja 34.626, eða 51,5 prósent, en nei segja 32.587, eða 48,5 prósent. Munurinn er því aðeins 2.039 atkvæði.Þegar þetta er skrifað eiga fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi enn eftir að berast og ljóst er að þær gætu breytt stöðunni töluvert.
Svona er staðan þegar búið er að telja 67 þúsund atkvæði