Sveitarstjóri með 752 milljónir í árstekjur seldi bát og kvóta
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, er í 20. sæti Hátekjulistans í ár. Hún og maðurinn hennar seldu bát sem gerður var út frá Tálknafirði til Ísafjarðar. Verðmæti kvótans var áætlað vel yfir hálfan milljarð.
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar, er sá einstaklingur af sviði stjórnmálanna sem náði efst á Hátekjulista Heimildarinnar í ár. Árstekjur hennar námu tæpum 752 milljónum króna í fyrra en megnið af því voru fjármagnstekjur.
Í samtali við Heimildina útskýrir hún að tekjurnar árið 2025 hafi verið óvenjulegar þar sem hún og maðurinn hennar, Tryggvi Ársælsson, hafi selt krókaaflamarksbátinn Sæla BA 333, sem nú heitir Sæli ÍS 268, til Ísafjarðar. Báturinn var áður gerður út frá Tálknafirði þar sem hjónin höfðu stundað útgerð frá 1991.
„Við seldum hann í október, nóvember í fyrra,“ segir Eyrún. „Ég er trúlega tekjuhærri í launum en maðurinn minn og þess vegna eru fjármagnstekjurnar skráðar á mig.“
Í frétt BB um söluna kemur fram að kaupandinn hafi verið Þórður Emil Sigurvinsson frá Suðureyri, búsettur á Ísafirði, en tilkynnt var um eigendaskiptin þann 7. nóvember. Þórður kom fyrir að útgerð fjögurra annarra báta.
