Sveinn Hjörtur Guðfinnsson þekkir vel að missa nákominn á voveiflegan hátt, hvetur hann því alla til að láta staðar numið í umræðunni um slysið hörmulega á Krýsuvíkurvegi, ekki álykta um slysið og þeir sem hafi myndbönd að snúa sér til lögreglu. Þjóðin er slegin yfir bílslysinu á Krýsuvíkurvegi þar sem þrjú ungmenni létu lífið. Þétt setið var á minningarathöfnum í Langholtskirkju, Lágafellskirkju og Háteigskirkju. Rannsókn málsins er nú á borði Rannsóknarnefndar samgönguslysa en myndbönd og sögusagnir hafa gengið manna á milli um afleiðingar og tildrög slyssins.
Sveinn Hjörtur með bón til þjóðarinnar: „Fyrir alla muni þá gefið þeim næði“