Ferðamálafrömuðurinn Sigvaldi Kaldalóns, eða Svali eins og hann er kallaður, óskar ástinni sinni til hamingju með afmælið í dag. Svali er nýbyrjaður með íþróttafræðingnum Birnu Baldursdóttur og miðað við ástarjátningu Svala blómstrar ástin vel.
„Til hamingju með daginn ástin mín,“ skrifaði Svali í dag á samfélagsmiðla. „Takk fyrir að vera þú alltaf. Takk fyrir að leyfa mér að vera samferða þér í lífinu. Nóg af ævintýrum framundan sem ég hlakka til að fara með þér í gegnum.“
Birna starfar hjá World Class en áður en Svali fór út í ferðamennsku á Tenerife starfaði hann í fjölmiðlum auk þess sem hann var crossfit-þjálfari og er mikill útvistaráhugamaður. Parið á því margt sameiginlegt.
Elska að vera rómantísk á netinu
Parið er mjög ástfangið eins og sést á samfélagsmiðlanotkun þeirra. Það er stutt síðan að Svali átt afmæli og þá sendi Birna honum svipuð skilaboð. „Pant breyta í hjarta, aftur og aftur með þér næstu árin,“ skrifaði Birna meðal annars í lok apríl.