Sólin hefur leikið við íbúa Austurlands undanfarna daga og ekkert lát virðist ætla að vera á blíðviðrinu. Á Seyðisfirði fór hitinn í 28 stig í dag og féll þar með hitamet sumarsins.
„Þetta er algjör ævintýrabær í svona veðri, það er alveg ótrúlegt,“ segir Þóra Bergný Guðmundsdóttir, íbúi á Seyðisfirði, í samtali við mbl.is.
„Þegar maður labbar í gegnum bæinn er þetta bara eins og þjóðhátíð, stanslaust stuð,“ segir hún.
Nóg pláss fyrir austan
Hún segir það ekki sanngjarnt að meirihluti þjóðarinnar þurfi að berjast í roki og rigningu stærstan hluta sumarsins.
„Ég vorkenni ykkur en ég skil ykkur,“ segir hún. „Það er nóg pláss hérna fyrir austan, þið þurfið ekki að vera föst í Ártúnsbrekkunni í rigningu. Það er bara að koma austur og vera með í stuðinu.“
„Ég er ekkert að tala um bara sem ferðamenn, það er alltaf verið að tala um plássleysi og íbúðaleysi í Reykjavík og hér eru bara nóg tækifæri. Á Fljótsdalshéraði er engin vá fyrir dyrum og endalaust pláss og gott veður og svo eru firðirnir dásamlegir,“ segir Þóra Bergný að lokum.


