Í færslu á Facebook síðunni segir Sigríður meðal annars: „Á þessu svæði er nú mikið af sauðfé á sumarbeit og þekkjandi til tegundarinnar vissi ég að það gæti endað með ósköpum, sem og varð raunin. Við Mjóanesafleggjarann fann ég kind sem hafði verið bitin illa og lömbin hvergi sjáanleg.”
Varað er við myndefni fréttarinnar.
Kindinni var komið heim á bæinn sem hún er frá og var hlúð að henni þar. Eftir að Sigríður hafði lesið örmerkið var haft samband við umráðamanninn, sem var með hundinn í pössun, kom í ljós að hann hafði verið týndur í á annan sólarhring frá sumarbústað í landi Miðfells. Sigríður óttast að fleiri kindur eða lömb þeirra séu slösuð eftir hundinn, sem hefur líklega verið líka á ferðinni á Lyngdalsheiði og fleiri stöðum.
Þetta segir Sigríður líka á síðunni sinni: „Hundur getur farið yfir stórt svæði á skömmum tíma, sér í lagi þegar hann þekkir ekki svæðið, er einn og ráfar um. Lögreglan hefur verið látin vita og verður þessu fylgt eftir. Nú er svo komið að við höfum séð a.m.k. 6-7 kindur án lamba. Mikið rask var í morgun á kindum á heiðinni og þær ferðuðust í hópum og hratt yfir. Einhvers staðar eru lömbin, hrædd, særð eða dauð.“
„Ég vil að lokum minna hundaeigendur á að þó að hundar séu frábærir heimilishundar og ljúfar skepnur þá þýði það ekki að þeir geti verið lausir í sveit í kringum önnur dýr. Þessi tegund, sem og aðrar tegundir, er með ríkt veiðieðli og því er mikilvægt að ná fljótt og vel til þeirra ef þeir týnast og því nauðsynlegt að auglýsa strax og óska eftir aðstoð. Þetta er á ábyrgð okkar sem eigenda og umsjónaraðila að dýrin geti ekki komið sér í svona aðstæður,” segir Sigríður.