Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar tvær líkamsárásir í Reykjavík eftir nóttina. Önnur árásin var stórfelld og er komin á borð miðlægrar rannsóknardeildar embættisins.
Það staðfestir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild, í samtali við fréttastofu. Hún gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu þar sem málið væri nýkomið inn á borð rannsóknardeildar.
Hin árásin er til rannsóknar hjá almennri deild. Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn segir árásina flokkaða sem meiri háttar vegna aðferðarinnar sem var beitt. Sá sem fyrir henni varð meiddist ekki alvarlega og var ekki fluttur á slysadeild.
Ásmundur segir að árásarmaðurinn hafi beitt kylfu við árásina og að lögregla telji að árásin hafi tengst rukkun. Málið er í rannsókn og árásarmaðurinn hefur ekki verið handtekinn.