Tilkynnt var um þrjár líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í gær og í nótt, þar af voru tvær í Hafnarfirði og ein í Kópavogi. Tvö málanna varða heimilisofbeldi.
Kona var handtekin eftir stórfellda líkamsárás í Hjarta Hafnarfjarðar. Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að ágreiningur hafi komið upp á milli fólks sem þekktist ekki. Árásin varð milli 21:00 og 22:00 í gærkvöldi.
„Annar rakst utan í hinn sem tók því illa og það urðu einhver átök,“ segir hann. Árásin sé skilgreind sem sérstaklega hættuleg aðför í ljósi þess að konan þrengdi að öndunarvegi hins aðilans.
Konan hefur verið yfirheyrð og er laus úr haldi. Málið er til rannsóknar.
Lögreglu barst tilkynning um líkamsárás í Kópavogi. Þegar hún kom á vettvang hafði gerandinn yfirgefið svæðið. Hann var síðan handtekinn í Reykjavík. Í hinu tilfellinu, sem var í Hafnarfirði, hafði gerandinn einnig yfirgefið vettvanginn. Hans er enn leitað.