Stjórnvöld í Finnlandi rannsaka meint landhelgisbrot eftir að stóran dróna rak á land á eyju í Porvoo-eyjaklasanum á Finnlandsflóa í gær. Varnarmálaráðherrann, Antti Hakkanen, segir í yfirlýsingu að landhelgisgæslan hafi málið til rannsóknar.
Almenningi stafaði ekki hætta af drónanum sem bar ekki sprengiefni, hefur AFP fréttaveitan eftir Antti Leskela, hjá landhelgisgæslu Finnlands. Hann segir of snemmt að segja nokkuð til um það hvort dróninn komi frá nágrannaríkinu Rússlandi. Samkvæmt bráðabirgðaskoðun bendi allt til þess að dróninn hafi verið notaður í því skyni að stunda eftirlit og kortlagningu.
Dróninn er nokkurra metra langur og með áföstum vængjum. Ekki er talið útilokað að dróninn hafi borist til Finnlands frá öðrum ríkjum við Eystrasalt. Úkraína hefur gert árásir á olíuinnviði í Rússlandi við Finnlandsflóa síðustu mánuði. Gerst hefur að úkraínskir drónar hafi hrapað á yfirráðasvæði Finnlands.