Umfangsmikil lögregluaðgerð er í gangi við Gránufélagsgötu á Akureyri. Heimir Eyjólfsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, staðfestir í samtali við fréttamann að sérsveit ríkislögreglustjóra taki þátt í aðgerðinni.
Lögregla er með mikinn viðbúnað á svæðinu, segir Heimir. Samkvæmt ábendingu sem fréttastofu barst eru ekki færri en fjórir lögreglubílar og einn sjúkrabíll á vettvangi.