Landsmenn geta flestir hverjir búist við einhverjum skúrum í dag. Veðurstofan spáir hægum vindi víðast hvar en norðanlands verður strekkingur þegar líður á daginn. Hiti verður á bilinu átta til sextán stig.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Norðaustlæg eða breytileg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu, og víða líkur á skúrum, en hægari suðvestanlands. Hiti 8 til 16 stig, en hvessir síðdegis og kólnar norðaustan- og austanlands með rigningu eða súld. Hægari seint í kvöld og nótt. Norðaustlæg eða breytileg átt 5-13 á morgun og víða bjart.
Rigning með köflum eða skúrir síðdegis, en súld norðan- og austanlands annað kvöld. Hlýnar heldur.