Umferð um stofnvegi út frá höfuðborgarsvæðinu hefur vaxið langt umfram uppbyggingu þeirra. Á löngum 1+1 vegköflum ræður hægasti bíllinn för og tafirnar kosta samfélagið milljarða króna á hverju ári. Hámarka mætti ábata með 2+2 vegum og 110 km/klst hámarkshraða á ákveðnum leiðum og forgangsraða ætti framkvæmdum eftir honum samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptaráðs sem birt var í dag.
Stofnvegakerfið við höfuðborgarsvæðið - Tafir kosta samfélagið milljarða árlega