Veitur hafa stöðvað borframkvæmdir í Skammadal á meðan unnið er að frekari mótvægisaðgerðum til að tryggja að lífríkið á svæðinu fái að njóta vafans.
Í tilkynningu frá Veitum segir að óháðir sérfræðingar verði fengnir til að meta áhrif af því sem þegar hafi verið veitt í ána og Varmárósa.
„Við skiljum vel að ásýnd Varmár og umræðan undanfarna daga veki áhyggjur hjá íbúum og þeim sem tengjast svæðinu sterkum böndum. Við tökum það mjög alvarlega,“ segir í tilkynningunni.
„Við vinnum náið með eftirlitsaðilum og sérfræðingum að því að meta umhverfisáhrifin og tryggja að lífríkið njóti vafans.“
Setja upp endurskoðað aðgerða- og vöktunarplan
Á vef Veitna má sjá að fyrirtækið hafi verið að vinna með Umhverfis- og orkustofnun, viðkomandi heilbrigðiseftirliti og sérfræðingum ráðgjafar- og verkfræðifyrirtækisins VSÓ sem sinna vöktun og rannsóknum á lífríki Varmár.
Þá sé verið að setja upp endurskoðað aðgerða- og vöktunarplan sem feli m.a. í sér auknar sýnatökur á vatni, borvökva og áhrifum á lífríki árinnar.
Veitur segjast munu upplýsa reglulega um stöðu mála á vefsíðu sinni.