Bandaríkjastjórn hefur leitað til Hæstaréttar til að fá aflétt banni lægra dómstigs við framkvæmd forsetatilskipunar sem ætlað er að draga úr notkun póstatkvæðagreiðslu. Donald Trump forseti undirritaði í mars tilskipun sem ætlað var að draga úr póstkosningum og fullyrti án sannana að þeim fylgdi kosningasvindl.
Samkvæmt ákvæðum tilskipunarinnar skyldi ríkisvaldið útbúa lista yfir alla skráða kjósendur og póstþjónustan USPS að tryggja að kjörseðlar bærust eingöngu þeim sem þar væri að finna.
Uppljóstrari hjá póstinum varaði við því í vikunni að milljónir landsmanna gætu farið á mis við kjörseðla því kerfi þjónustunnar sé gallað, það hafi verið sett upp með afar fljótfærnislegum hætti.
Ríki undir stjórn demókrata stefndu alríkinu umsvifalaust
Ríki undir stjórn demókrata stefndu alríkinu strax með þeim rökum að það væri aðeins í þeirra verkahring að annast skipulag kosninga.
Alríkisdómari setti lögbann á tilskipun forsetans í liðinni viku með þeim rökum að nánast útilokað væri fyrir einstök ríki að framfylgja reglunum sem að öllum líkindum brytu í bága við stjórnarskrá.
Flest ríkjanna sem stefndu hefðu þegar pantað kjörseðla og bæri að senda þá kjósendum svo snemma sem í næstu viku.
Kannanir sýna miklar líkur á að Repúblikanaflokkurinn tapi litlum meirihluta sínum í þinginu í kosningunum á miðju kjörtímabili forseta í nóvember, sérstaklega í fulltrúadeildinni. Demókratar hafa gefið til kynna að sigri þeir hindri þeir framgöngu stefnumála Trumps og kæri hann jafnvel til embættismissis þriðja sinni.
Nokkrir dagar eru síðan Hæstiréttur úrskurðaði að ríki sem ætluðu að fá tilskipuninni hnekkt hefðu ekki lagalegan grundvöll til að vefengja hana. Eins og áður sagði hefur Trump sagt póstkosningu ýta undir möguleikann á kosningasvindli, meðal annars þannig að óskráðir kjósendur greiddu atkvæði.
Hann hefur tengt röksemdafærsluna við yfirlýsingar um að svik hefðu verið í tafli þegar hann tapaði fyrir Joe Biden í forsetakosningunum 2020. Trump er þó óhræddur við að póstleggja eigin atkvæði, seinast í forvali Repúblikanaflokksins í Flórída.