Ef Instagram færslurnar birtast ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Síðasta stefnumótið í bili
Áhrifavaldaparið Ástrós Traustadóttir og Adam Helgason eiga von á öðru barni sínu hvað úr hverju og fóru því á síðasta stefnumótið í bili.
Bleikur padel í Asíureisu
Sunneva Einarsdóttir hefur verið á ferðalagi um Malasíu með kærasta sínum, Benedikti Bjarnasyni.
Þá kíkti hún greinilega líka til Indónesíu í bleikan padel.
Fröken Ameríka
Fyrirætan Helen Óttarsdóttir er á ferðalagi um Bandaríkin með kærasta sínum, gítarleikaranum Rubin Pollock.
Ætlaði ekki að verða svona mössuð
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir ætlaði ekki að verða svona mössuð.
Phoebe Buffay og Hannes Halldórs
Dorrit Moussaieff birti nokkrar myndir á gramminu í vikunni. Þar á meðal myndaröð frá Aspen þar sem hún hittti Friends-leikkonuna Lisu Kudrow og svo rifjaði hún upp fagnaðarlætin á EM árið 2016 þar sem hún stökk í fang Hannes Halldórssonar.
Gellubústaður á Þingvöllum
Hildur Sif Hauksdóttir fór í gellubústað á Þingvöllum.
Heilluð af Friðheimum
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi þingmaður, heimsótti vini sína á Friðheimum og dáðist að ræktuninni.
Birti myndir af kæró
Tónlistarkonan Bríet birti myndir af tónleikum sínum á Lopapeysunni og þar voru nokkrar af kærastanum, Lárusi Erni.
Vísir fjallaði um kærustuparið í vikunni en lítið hefur farið fyrir sambandinu á samfélagsmiðlum síðustu mánuðina.
Fædd í Montreal
Elín Hall fagnaði afmæli á fæðingarstað sínum, Montreal, á föstudaginn.
Gummi Emil gusað yfir sig
Líkamsræktarfrömuðurinn Gummi Emil segir marga hafa tjáð sér að hann hafi gusað yfir sig. Það geti verið en hann ætlar samt ekki að hætta.
Tvöföld Sveindís
Landsliðskonan Sveindís Jane birti tvær prófílmyndir af sér, eina í lit og eina í svarthvítu.
Huggulegt í Hamptons
Fyrirsætan Helena Hafþórsdóttir O'Connor skellti sér í frí til New York með kærasta sínum, Stefáni Orra, þar sem þau spókuðu sig um Hamptons-hverfaröðina.
Gleitt sitja glaðir
Húðsérfræðingurinn Helga Sigrún klæddi sig í karlmannsjakkaföt og stillti sér upp.
Æðislegt við Aþenustrendur
Áhrifavaldurinn Móeiður Lárusdóttir og fótboltakappinn Hörður Björgvin Magnússon hafa notið sumarblíðunnar í Aþenu síðustu vikuna.
Kolfreyja leggst á bæn
Tónlistarkonan Kolfreyja Sól, betur þekkt sem Alaska1867, lagðist á bæn fyrir, að því er virðist, kött ef marka má táknin.
Æft á fullu
Landsliðskonan Glódís Perla er byrjuð að æfa á fullu með Bayern Munchen.
Enn í sumarskapi
Útvarpskonan Jóhanna Helga er enn í sumarskapi.
Meðal hundrað áhrifamestu
Katrín Tanja Davíðsdóttir var meðal hundrað útvalinna á lista Time yfir áhrifamesta íþróttafólk heims og mætti á galakvöld í tilefni af því með eiginmann sinn og dóttur.
Uppstillt við listaverk
Helga Þóra Bjarnadóttir stillti sér upp við listaverk.
Ástfangin í sextán mánuði
Júlía Margrét Einarsdóttir, útvarpskona og rithöfundur, er búin að vera í sambandi með sínum heittelskaða í sextán mánuði og ætlar að fagna hverjum mánuði næstu sjötíu árin.
Plötusnúður í golfstuði
Plötusnúðurinn Dóra Júlía er mætt til Bretlands á leið í stórafmæli og smellti myndum af sér í golf-blíðunni.