Eigendur Reykjabaðanna binda vonir við að hægt verði að opna böðin í ágúst eða september.
Framkvæmdir hafa staðið yfir frá árinu 2024 en böðin eru fyrsti áfanginn í umfangsmikilli ferðaþjónustuuppbyggingu á Árhólmasvæðinu í Hveragerði við rætur Reykjadals.
Í tilkynningu um Reykjaböðin í september 2024 kom fram að alls myndi ferðaþjónustusvæðið telja 11 þúsund fermetra.
Á næstu dögum verður jafnframt stefnt að því að koma fyrir fimmtán hótelbústöðum á Árhólmasvæðinu. Bústaðirnir koma fullbúnir til landsins með flutningaskipi og verða fluttir frá Þorlákshöfn til Hveragerðis í byrjun næstu viku. Því næst þarf að koma þeim fyrir á grunni og tengja þá við lagnir og rafmagn. Fleiri bústaðir gætu síðar bæst við.
Hljóðvegur 1 heimsótti svæðið á dögunum og fékk að forvitnast um gang framkvæmdanna og hvernig böðin munu líta út þegar þeim lýkur.
Brynjólfur J. Baldursson, einn af eigendum Reykjabaðanna, tók á móti Hólmfríði Maríu. Hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér fyrir neðan.