Keir Starmer ætlar að segja af sér sem þingmaður og einbeita sér að alþjóðamálum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá honum í dag.
Starmer er þingmaður fyrir Holborn og St Pancras-kjördæmið. Nú þarf að boða til aukakosninga þar.
Í júní sagði Starmer af sér sem leiðtogi Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands og Andy Burnham tók við.
Starmer segir það hafa verið mikinn heiður að vera fulltrúi kjördæmis síns í 11 ár en nú ætli hann að einbeita sér að alþjóðamálum.