Starfsmaður sem sér um textavél (e. teleprompter) í Hvíta húsinu er til rannsóknar vegna gruns um að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar til að veðja á ræður Donalds Trump Bandaríkjaforseta og hagnast um tæplega 100 þúsund dali.
Hinn grunaði, Gabriel Perez, sem hefur starfað í Hvíta húsinu frá árinu 2016, er sakaður um að hafa veðjað á það hvaða orð forsetinn myndi nota í mikilvægum opinberum ræðum.
Veðmálin voru gerð á Kalshi, sem er spámarkaðsvettvangur þar sem notendur geta veðjað á raunverulega atburði. Samkvæmt frétt BBC frysti Kalshi aðgang Perez áður en hann náði að taka út nokkurn hagnað.
Óvenjuleg veðmál vöktu athygli
Forsvarsmenn Kalshi sögðu í samtali við BBC að sérfræðingar þeirra hefðu í mars tekið eftir óvenjulegum veðmálum á svokölluðum „orðamörkuðum“ (e. mention markets), þar sem notendur spá fyrir um hvort ræðumaður muni nota algeng hugtök, eins og nöfn á ákveðnum löndum, efnahagsleg hugtök eða slagorð úr kosningabaráttunni.
„Orð stjórnmálaleiðtoga, eins og forseta og seðlabankastjóra, valda milljarða dala hreyfingum á gjaldeyrismörkuðum, olíuviðskiptum og á hlutabréfamarkaði,“ sagði í yfirlýsingu frá Kalshi.
Með því að skoða notendagögn komst fyrirtækið að því að notandinn var ríkisstarfsmaður sem stýrði textavél Hvíta hússins sem sýnir textann sem ræðumenn lesa í myndavélar.
Kalachi frysti rúmlega 90 þúsund dali, sem nemur rúmum 12 milljónum króna, áður en hægt var að taka upphæðina út.