Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, lýsa yfir stuðningi við Þjóðverja vegna tilraunar til árásar á flugvöll í Leipzig í byrjun ágúst. Stjórnvöld í Þýskalandi saka Rússa um að hafa flogið dróna með sprengiefni inn á flugvöllinn. Rússar hafna þeim ásökunum.
Von der Leyen og Mark Rutte hittust á fundi í Brussel í dag vegna árásartilraunarinnar í Leipzig. Von der Leyen sagði á blaðamannafundi að ef árásin hefði tekist hefðu getað orðið miklar skemmdir og jafnvel mannfall.
„Ég segi hreint út hvað þetta var,“ sagði Von der Leyen. Hernaðarlegum búnaði hefði verið beitt og að Rússar hefðu framið árásina á evrópskri grundu. Tilraunin væri hluti sífellt hættulegri árása á flugvelli og aðra mikilvæga innviði Evrópuríkja.
„Evrópubúar standa frammi fyrir þeirri staðreynd að þetta er hinn nýi veruleiki. Við verðum að bregðast við af festu, sem þýðir að við þurfum að vera viðbúin að svara óábyrgri hegðun Rússa, bæði hraðar og betur,“ sagði forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Þá ítrekuðu Von der Leyen og Rutte stuðning við Þjóðverja. Hún sagði að ef það hefði verið tilgangurinn í Leipzig að hræða Evrópuríki frá stuðningi við Úkraínu hefði það síður en svo tekist. ESB og NATO ætli að auka þrýsting á Rússa.
Skortur er á loftvörnum í Úkraínu og sagði Von der Leyen í morgun að ESB hefði borist beiðni frá landinu um fjárstyrk til að bæta þær. Aðildarríkin væru að skoða málin sem væru að þokast í rétta átt.