Upptök skjálftans sem fannst á suðvesturhorninu rétt fyrir klukkan tvö í dag eru þau sömu og þeirrar skjálftahrinu sem hófst í gærmorgun. Skjálftarnir teljast nú á sjötta hundrað frá því í gær.
Jóhanna Malín Skúladóttir, náttúruvársérfræðingur, segir jarðskjálfta vera algenga á þessu svæði vegna flekaskilanna sem þar eru. Þennan skjálfta telur hún þó óvenjulegan sökum stærðar í samtali við fréttastofu. Hann er sá stærsti sem hefur mælst á svæðinu síðan árið 2022, en hann átti upptök sín við Lambafell. Hún segir Veðurstofu hafa borist á annað hundrað tilkynninga um skjálftann.
Jóhanna Malín segir að það megi búast við eftirskjálftum sem geta orðið allt að þrír að stærð. Veðurstofan er með mæli á svæðinu og segir ekki hægt að lesa meira í skjálftana en að þeir séu merki um eðlilegar sprunguhreyfingar.