Kjarnorkuáætlun Norður-Kóreu er með öllu óumsemjanleg. Þetta segir Kim Yo-jong, systir Kim Jong-uns leiðtoga Norður-Kóreu.
„Staða okkar sem kjarnorkuveldi er algjörlega óumsemjanleg,“ hafa ríkismiðlar upp úr tilkynningu frá Kim sem er á meðal valdamestu ráðgjafa bróður síns. Þar segir hún Norður-Kóreu „ekki líða neinar hótanir“
Yfirlýsingar Kim þarf að skoða í ljósi þess að Xi Jinping forseti Kína er væntanlegur í heimsókn til Norður-Kóreu eftir helgi.
SÞ meina ríkinu að eiga kjarnorkuvopn
Í kjölfar fundar Xis og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í síðasta mánuði birti Hvíta húsið upplýsingaskjal um fundinn. Þar kom fram að Xi og Trump hefðu staðfest sameiginlegt markmið þeirra um afkjarnorkuvæðingu Norður-Kóreu.
Stjórnvöld í Pjongjang hafa lengi haldið fast fram rétti sínum til að eiga kjarnorkuvopn. Þvingunaraðgerðir öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna meina ríkinu þó að eiga kjarnorkuvopn.
Heimsóknir Kínaforseta frekar fátíðar
Kína er mikilvægur bandamaður Norður-Kóreu. Síðarnefnda ríkið er á meðal þeirra einangruðustu á jörðinni og það er beitt fjölmörgum alþjóðlegum þvingunaraðgerðum.
Þrátt fyrir tiltölulega sterk tengsl milli stjórnvalda í Pjongjang og Beijing eru heimsóknir kínverskra leiðtoga til Norður-Kóreu frekar fátíðar. Xi fór þangað síðast 2019. Það var í fyrsta sinn síðan 2005 sem kínverskur þjóðarleiðtogi landsins heimsótti Pjongjang.
Xi hefur sagst vilja styrkja tengslin við nágranna sína en skuggi féll á sambandið á tímum kórónuveirufaraldurs. Þá hafa norðurkóresk stjórnvöld hallað sér í auknum mæli upp að stjórnvöldum í Rússlandi.