San Antonio Spurs tryggði sér sæti í úrslitum NBA-deildarinnar í nótt með 111:103-sigri gegn ríkjandi meisturum í Oklahoma City Thunder í oddaleik Vesturdeildarinnar.
Þetta er í fyrsta skipti síðan 2014 sem San Antonio kemst í úrslitaleik NBA-deildarinnar en liðið mun mæta New York Knicks í úrslitum.
Mikið jafnræði var með liðunum allan leikinn og munaði aðeins þremur stigum að þriðja leikhluta loknum, 80:77.
San Antonio byrjaði fjórða leikhluta afar vel og náði að stækka forskotið í 12 stig þegar rúmar fjórar mínútur voru eftir af leiknum, 107:95. Oklahoma náði að minnka muninn í sex stig, 109:103, en nær komust ríkjandi meistararnir ekki og sigur San Antonio því staðreynd.
Frakkinn Victor Wembanyama var stigahæstur í liði San Antonio með 22 stig, sjö fráköst og tvær stoðsendingar.
Í liði Oklahoma var Shai Gilgeous-Alexander atkvæðamestur en hann skoraði 35 stig, hirti fjögur fráköst og gaf níu stoðsendingar.