Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar flugu til Akureyrar í gær vegna þess sem talið var að væri hugsanlega sprengja í heitum læk sem rennur rétt neðan við op Vaðlaheiðarganga vestan megin.
Erlendir ferðamenn gerðu lögreglu viðvart á fjórða tímanum í gær eftir að þeir fundu hlutinn í læknum. Talsvert viðbragð var á svæðinu í gær vegna málsins en ekki var farið í víðtækar lokanir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Fljótlega var talið ólíklegt að hluturinn gæti sprungið að sjálfu sér.
Lækurinn myndaðist þegar bormenn í Vaðlaheiðargöngum lentu á heitri vatnsæð við gerð ganganna og hefur síðan verið vinsæll baðstaður bæði heimamanna og ferðamanna sem eiga leið um svæðið.
Samkvæmt lögreglunni á Akureyri fer ákveðið verklag í gang þegar slíkar tilkynningar berast og haft var samband við sprengjusérfræðinga sérsveitar ríkislögreglustjóra.
Það var hins vegar talið að það þyrfti að fá sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar í verkið eftir að myndir bárust frá lögreglunni á Akureyri. Þeir komu með þyrlu til Akureyrar á áttunda tímanum.
Samkvæmt lögreglu leit hluturinn sannarlega út fyrir að geta verið sprengja, jafnvel frá því í seinna stríði.
En hluturinn reyndist hins vegar vera svokallaður pakkari, en þeir eru notaðir við jarðgangagerð, og hluturinn því líklega borist með heita vatninu úr göngunum og niður lækinn.
Til eru ýmsar gerðir af pökkurum en sá sem þarna fannst var um 30 sentimetrar á lengd, ílangur og mjókkaði í annan endann.
Aðgerðum á vettvangi lauk á níunda tímanum í gær.