Nigel Farage, leiðtogi Reform UK, birti sprenghlægilegt myndband þar sem kona sést öskra að honum ókvæðisorð úr bifreið sinni, aðeins augnabliki áður en hún ekur aftan á bílinn fyrir framan sig.
Atvikið náðist á myndband og hefur vakið mikla kátínu á samfélagsmiðlum.
Í myndskeiðinu má sjá Farage ganga fram hjá röð kyrrstæðra bifreiða þegar konan kallar hann „rúnkara“ eða whanker.
Athygli hennar virðist þó hafa verið svo föst á Farage að hún tók ekki eftir því að umferðin fyrir framan hana hafði stöðvast.
Örfáum sekúndum síðar heyrist skellur þegar hún ekur beint aftan á næsta bíl þar sem Farage heyrist segja:
„Hún gerir þetta ekki aftur í bráð.“
Farage birti myndbandið sjálfur á samfélagsmiðlinum X.
„Þessi kona öskraði að mér móðganir og klessti síðan á,“ skrifaði Farage.
This lady shouted abuse at me and then crashed her own car.
That’s what you might call instant karma! pic.twitter.com/qMQRtEKK6Q
— Nigel Farage (@Nigel_Farage) July 23, 2026