Ítalskir verkfræðingar sprengdu um helgina 13 höft í brúnni Viadotto Tevere, sem liggur yfir ána Tíber. Hún er hluti af þjóðvegi sem tengir saman héruðin Lazio og Umbria. Sprengjurnar voru settar í sérstök göt í bitum gamla brúargólfsins og sprengingunum stýrt þannig að afmarkaðir hlutar brúargólfsins féllu lóðrétt niður. Aðgerðin gekk að óskum.
Ráðast á í umfangsmiklar endurbætur á burðarvirki brúarinnar. Þá verður nýja brúargólfið bæði úr stáli og steypu. Gömlu stoðir brúarinnar verða notaðar áfram. Framkvæmdin kostar rúmlega 40 milljónir evra, jafnvirði 5,6 milljarða íslenskra króna.