Borgarráð ákvað í dag að vísa tillögu um að heimila framkvæmdir við nýjan sparkvöll á Landakotstúni aftur til umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar.
Í bókun fulltrúa meirihlutans í ráðinu biðja þeir sviðið um að fara frekar í hóflegri útfærslu, þar sem bætt verði í gróður á svæðinu, skoðað verði að lækka girðingar og völlurinn hafður í sömu stærð og aðrir vellir í borginni.
Borgarráð samþykkti árið 2023 að fela sviðinu að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi svo unnt yrði að reisa sparkvöll á túninu, sem nýtast myndi börnum í Landakotsskóla og öðrum börnum í hverfinu.
Átti að rísa fyrir árslok
Áformin hafa að undanförnu valdið deilum hjá íbúum sem hafa mismunandi skoðanir á því hvernig ásýnd túnsins eigi að vera og hver nýting þess hafi verið að undanförnu. Sumir hafa viljað endurskoða áform um sparkvöll þar sem túnið nýtist vel í ýmis uppátæki en aðrir segja túnið lítið nýtt og að nauðsynlegt sé að fá þangað sparkvöll.
Í tillögu umhverfis- og skipulagssvið sem lögð var fram á fundinum í dag, og var vísað aftur til sviðsins, kemur fram að framkvæmdirnar eigi að kosta 70 milljónir og ættu að ljúka fyrir lok árs.
Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, sagði í viðtali við mbl.is í síðustu viku að stærra svæði hefði verið tekið undir breytingarnar en upphaflega hefði verið ætlunin. Túnið væri mikið notað og rétt væri að staldra við og endurskoða áformin.
Ljóst er nú að Einar hefur staðið við það að ætla endurskoða áformin. Í bókun meirihlutans kemur fram að vilji sé til að bæta aðstoðu til íþróttaiðkunar í nágrenni Landakotsskóla og að því verði málið unnið hratt og örugglega þegar hóflegri útfærsla umhverfis- og skipulagssviðs verði tilbúin.