Spara má milljónir klukkustunda og milljarða króna með umbótum á stofnvegakerfi landsins og hækkun hámarkshraða á ákveðnum vegköflum upp í 110 km/klst.
Viðskiptaráð hefur gefið út skýrslu þar sem fram koma þó nokkrar tillögur um umbætur á stofnvegakerfi landsins sem stjórnvöldum er ráðlagt að ráðast í sem fyrst.
Ábatasamasta einstaka verkefnið sem lagt er fram í skýrslu Viðskiptaráðs er uppbygging leiðarinnar frá Hvalfjarðargöngum til Borgarness. Með því að breyta veginum í 2+2-akreinar, tvöfalda Hvalfjarðargöng, gera mislæg gatnamót og hækka hámarkshraða í 110 km/klst. er að sögn Viðskiptaráðs hægt að spara 1,3 milljónir klukkustunda í bíl á ári. Það samsvarar 11,2 milljörðum króna á ári.
Unnið hefur verið að sérstökum umferðarhermi sem veitir raunverulega sýn á umbæturnar sem Viðskiptaráð leggur fram.
Heimild er í lögum fyrir að hækka hámarkshraða á vegum í 110 km/klst. Er það því mat Viðskiptaráðs að ekkert sé því til fyrirstöðu að ráðist verði strax í aðgerðir sem geti sparað þjóðinni milljónir klukkustunda og milljarða króna á ári hverju.
Björn Brynjúlfur Björnsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs biðlar til stjórnvalda að líta á uppbyggingu stofnvegakerfisins ekki sem útgjöld heldur sem fjárfestingu. Hann segir enn fremur að ábati af framkvæmdunum sem Viðskiptaráð leggi fram vegi umtalsvert meira en kostnaður við að framkvæma þær.
Samgöngur
- Hækkun hámarkshraða í 110 km/klst. yrði mikill ábati með nánast engum tilkostnaði, að mati Viðskiptaráðs.
- Uppbygging stofnvegakerfisins sé fjárfesting en ekki útgjöld.
- Sérstakur umferðarhermir kominn á vef Viðskiptaráðs.
Lesa má nánar um málið á bls.30 í Morgunblaðinu í dag