Mótmælin í Frakklandi hafa verið fyrirferðamikil í umfjöllun fjölmiðla þar sem óeirðir, ofbeldi, gripdeildir og útgöngubann hafa sett svip sinn á mótmæli undangenginna daga.
Mótmælt víða
Víðar í Evrópu geisa þó mótmæli og rétt eins og í Frakklandi eru ungir námsmenn fremstir í fylkingu í flestum þeirra.
Ítalía
270 handteknir í Mílanó
Á Ítalíu hafa mótmæli farið fram síðustu daga en á föstudag gengu þúsundir námsmanna í gegnum Róm til að mótmæla stefnumálum stjórnvalda og háum framfærslukostnaði.
Mótmælin héldu áfram í mörgum borgum Ítalíu yfir helgina, þar á meðal Mílanó, Bologna, Brescia, Bergamo og Torino. Í nokkrum borgum hafa mótmælin snúist upp í óeirðir, ekki síst í Mílanó þar sem fleiri en 270 ungmenni hafa verið handtekin. Giorgia Meloni forsætisráðherra Ítalíu hefur boðað stjórnvöld á fund til að ræða stöðu mála.
Belgía
Táragas og vatnsbyssur
Ofbeldi braust út í mótmælum í Belgíu á laugardaginn en þar hefur verið mótmælt síðan í byrjun október. Ungmennin mótmæla meðal annars hærri námsgjöldum og stefnubreytingum sem hefta aðgengi að háskólum.
Slegið hefur í brýnu á milli lögreglu og mótmælenda en belgíska lögreglan hefur bæði beitt táragasi og vatnsbyssum.
Spánn
Mótmælt í meira en 50 borgum
Á Spáni er mikil mótmælabylgja sem efldist í september eftir að 87 ára gömul kona var borin út úr íbúð sinni vegna vangoldinnar leigu. Það var eftir að leigufélag sem hafði eignast byggingu hennar hækkaði leiguna upp úr öllu valdi.
Mótmælin náðu hámarki 3. október þegar fólk kom saman í meira en fimmtíu borgum. Síðan þá hafa mótmælin haldið áfram en kröfurnar ná nú einnig til menntamála.
Portúgal
Tjaldbúðum rutt niður í Portó
Þúsundir hafa mótmælt í Lissabon í Portúgal um helgina en þar eru svimandi hár framfærslukostnaður og húsnæðiskrísa efst á baugi.
Aðdragandi mótmælanna einkenndist af ókyrrð, en viku fyrr ruddi lögreglan í Portó niður tjaldbúðum aðgerðasinna sem mótmæltu húsnæðisvandanum.
Albanía
Gúmmíkúlum skotið að mótmælendum
Í Albaníu hafa mótmæli staðið yfir í marga daga. Í upphafi snerust þau um slæma námsaðstöðu og há námsgjöld en nú hafa mótmælendur einnig krafist afsagnar forsætisráðherrans Edi Rama.
Kveikt hefur verið í fjölda bygginga og lögregla hefur beitt gúmmíkúlum á mótmælendur.