Spálíkanið er unnið af Hafsteini Einarssyni, nýdoktor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. Líkanið er birt á vef RÚV almenningi til upplýsingar.
Hvernig virkar líkanið?
Viðmiðin uppfærast við nýjar tölur. Vægi hvers kjördæmis ræðst af fjölda gildra atkvæða í hverju kjördæmi. Sé reiturinn Gild alls auður er stuðst við væntan fjölda miðað við kjörsókn 2024. Um leið og raunveruleg tala er slegin inn færast viðmiðin til svo þau samsvari niðurstöðu sem gæti leitt til jafnra úrslita (50%–50%) á landsvísu. Talin atkvæði eru fasti í líkaninu; auð og ógild atkvæði koma hvergi við sögu. Óvissubilið dregst saman eftir því sem talningu vindur fram.
Utankjörfundaratkvæði eru talin síðast og geta verið um fimmtungur atkvæða. Síðasti hluti talningar í hverju kjördæmi er því ekki endilega þverskurður af greiddum atkvæðum og því er gert ráð fyrir aukinni óvissu vegna þess þar til endanleg úrslit liggja fyrir í kjördæminu.
Viðmiðin sjálf byggja á Íslensku kosningarannsókninni 2013–2024 og gera ráð fyrir að innbyrðis munur kjördæma sé sá sami og þar mælist. Líkanið byggir því á forsendum sem eru breytingum háðar — þar af leiðandi eru óvissubil töluverð.