Spænskur ríkisborgari, maður um fertugt, hefur verið ákærður fyrir annars vegar peningaþvætti og hins vegar tilraun til peningaþvættis. Meint brot voru framin árið 2023, að því er fram kemur í ákæru. Annars vegar er maðurinn sagður hafa móttekið 8.000 evrur í reiðufé, sem honum gat ekki dulist að voru ávinningur af sölu og dreifingu fíkniefna eða öðrum refsiverðum brotum, og flutti með leynd frá Íslandi. Er brotið sagt hafa verið framið í maí 2023.
Spænskur fangi á Litla-Hrauni ákærður fyrir peningaþvætti