SpaceX, eldflauga- og gervihnattafyrirtæki bandaríska milljarðamæringsins Elon Musk, stefnir á að safna um 75 milljörðum dala í frumútboði hlutabréfa, að því er fyrirtækið greindi frá í dag. Það jafngildir um 9.280 milljörðum króna.
Fyrirtækið er metið á 1.765 billjónir dala.
Talsmenn SpaceX sögðust munu bjóða til sölu 555.555.555 hluti á upphafsverðinu 135 dölum á hlut.
Ef af frumútboðinu verður mun fyrirtæki Musk slá fjáröflunarmet olíurisans Saudi Aramco, sem safnaði 25,6 milljörðum dala árið 2019.
Með um 13 milljarða hluti í umferð yrði fyrirtækið metið á 1.765 billjónir dala við frumútboðið.
Gæti orðið að fyrsta billjónamæringi heims
Þetta gæti einnig gert Musk, sem er þegar ríkasti maður heims, að fyrsta billjónamæringi mannkyns, að sögn sérfræðinga.
SpaceX tók yfir gervigreindarfyrirtæki Musk, xAI, í febrúar. Ári áður hafði xAI yfirtekið samfélagsmiðilinn X (áður þekktur sem Twitter).
Sérfræðingar búast við frekari samþjöppun á viðskiptaveldi Musk árið 2027, en þá segja þeir að SpaceX muni líklega sameinast rafbílafyrirtæki hans, Tesla, sem einbeitir sér í auknum mæli að vélfærafræði, orku og sjálfakandi samgöngum.
