Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola - Vísir

Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola - Vísir

Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola - Vísir

Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu er nú á þriðja degi en alls voru sex dagar teknir frá í dómsal vegna málsins. Íris Helga sætir ákæru fyrir umfangsmikið umsáturseinelti gagnvart þremur karlmönnum og fjölskyldum þeirra. Brotaþolar hafa allir borið vitni í málinu sem og Íris Helga sjálf.

Í morgun bar dóttir Írisar, sem er á unglingsaldri, vitni þar sem hún sagði meðal annars að móðir hennar hefði aldrei beðið hana um að gera neitt óeðlilegt og þá sagði hún bróður sambýliskonu eins brotaþola í málinu hafa ráðist inn á heimili þeirra mæðgna og hótað lífláti.

Barnsfaðir Írisar vildi hins vegar ekki bera vitni. Ekki er hægt að krefjast vitnisburðar hans vegna tengsla við sakborning.

Næst í röðinni voru fimm vitni sem öll tengjast Írisi Helgu á mismikinn hátt. Meðal þeirra voru tveir karlmenn sem Íris er sögð hafa haft samband við til að láta lemja einn brotaþola málsins. Brotaþolinn bar vitni í gær og greindi þá frá umfangsmiklu umsáturseinelti þar sem saur var meðal annars makað á hurðarhúna húsnæðis hans og bíls.

„Ég er vinur vina minna og hjálpa til ef þarf“

Annar mannanna sagðist tengjast Írisi þar sem kona hans og Íris voru að vinna saman og hafi verið vinkonur á sínum tíma. Sagði hann Írisi Helgu hafa sent sér skilaboð varðandi það „að lemja manninn, láta lemja hann eða eitthvað þess háttar“ eins og maðurinn sagði sjálfur.

Íris Helga hefur neitað hinum ýmsu ásökunum en játað í einhverjum tilvikum.Vísir

Í fyrstu sagðist hann hafa tekið vel í skilaboð Írisar Helgu og verið tilbúinn að taka þátt í því sem hún bað hann um.

„Ég er vinur vina minna og hjálpa til ef þarf. Þegar ég sé síðan hvernig hlutirnir eru í raun þá er ég ekki sammála því og hætti að svara skilaboðum,“ sagði maðurinn og sagðist meta það svo að Írisi Helgu hafi verið alvara með skilaboðunum.

Verjandi Írisar Helgu, Helga Vala Helgadóttir, spurði hvort hún skildi manninn rétt, að hann hafi ætlað að ganga í verkið. Ítrekaði hann þá að hann væri vinur vina sinna. Las Helga Vala jafnframt upp skilaboð þar sem maðurinn sagði vini sína vera að koma til Keflavíkur og að lítið mál væri að tala við brotaþola og fá hann til að bakka.

Þá vísaði verjandi einnig í skilaboð frá Írisi þar sem stóð „ég er að fokking deyja, mig langar svo að berja hann“.

„Ég túlkaði þau í fullri alvöru,“ sagði maðurinn.

Buðu aðstoð en var hent út af samfélagmiðlum

Hinn maðurinn sem bar vitni sagði að kona hans og Íris Helga væru æskuvinkonur. Hafi hann og Íris stundum sent brandara sín á milli á samfélagsmiðlum en dag einn hafi hann fengið skilaboð af öðrum toga.

„Hún sendi mér snap þar sem hún bað mig að lemja [brotaþola]. Hún sendi vídeó af húsinu hans þar sem hún bað mig að lemja hann,“ sagði maðurinn og bætti við að hún hafi sent fleiri skilaboð um málið og hann hafi því ekki tekið þeim sem gríni, en verjandi Írisar Helgu spurði hvort svo gæti hafa verið.

Hann hafi svarað Írisi Helgu neitandi og einhverju síðar hafi hann og konan sent Írisi skilaboð þar sem þau buðu henni aðstoð, hún gæti komið og talað við þau og að þau vildu að hún leitaði sér hjálpar. Eftir það komu ekki fleiri skilaboð.

„Svo var hún búin að henda mér og konunni út af Facebook og öllum öðrum stöðum.“

Upplifði hegðun Írisar Helgu í garð brotaþola sem ógnvekjandi

Tvær fyrrverandi vinkonur Írisar báru sömuleiðis vitni í morgun. Vitnuðu þær báðar um að vinslit hafi orðið vegna lyga Írisar um ýmsa hluti. Önnur konan sagðist hafa farið rúnt með Írisi þar sem keyrt var fram hjá húsi áðurnefnds brotaþola.

Hún viti þó ekki hvert erindið var en hún hafi síðan þá upplifað hegðun Írisar Helgu í garð brotaþola sem ógnvekjandi. 

Þá hafi Íris beðið mann vinkonunnar um að berja brotaþola en maðurinn er annar þeirra sem einnig báru vitni í morgun. Hún hafi einnig orðið vitni að því á einum tímapunkti þar sem Íris Helga hafi verið að skipta á milli mismunandi reikninga á samfélagsmiðlum í símanum sínum.

Sömuleiðis hafi hún heyrt af því að Íris Helga hafi logið til um að hún væri með krabbamein. Verjandi Írisar spurði hvort konunni væri kunnugt um að Íris hefði verið á krabbameinsbælandi lyfjum um tveggja ára skeið.

„Já, en ekki vegna krabbameins,“ sagði konan og þegar Helga Vala verjandi spurði hana hvort eitthvað af þessum upplýsingum hefði skolast til sagði hún svo ekki vera.

„Þetta man ég mjög vel,“ en oft og tíðum svaraði konan því til þegar hún var spurð út í málið að hún myndi ekki atvik mála enda nokkur ár síðan þau hafi átt sér stað.

„Ég upplifði hana sem lasna“

Hin konan sem bar vitni sagði Írisi vera fyrrverandi vinkonu en að hún þekkti líka brotaþola og sambýliskonu hans sem væri vinkona sín. 

Hún sagðist hafa heyrt af hegðun Írisar Helgu í þeirra garð, meðal annars að Íris hefði farið að heimili þeirra og ónáðað. Sjálf hefði hún ekki orðið vitni að slíkri hegðun. Þá hefði brotaþoli sagt henni frá því að Íris hefði komið með fóstur í krukku að heimili hans, líkt og hann vitnaði um í gær, en sjálf sagðist hún ekki hafa séð það.

Hún hafi upplifað breytingu á hegðun Írsar á einhverjum tímapunkti.

„Ég upplifði hana sem lasna, ég veit ekki hvað gerðist eða hvað veldur.“

Verjandi Írisar spurði einnig út í spjall konunnar við vinkonur þeirra þar sem þær hafi skrifað að Íris ætti að missa forræði yfir börnum sínum og fara á geðdeild. Einnig að ýmislegt komi í ljós eftir magaminnkunaraðgerðir.

Þá sagðist konan einnig hafa heyrt að Íris Helga hefði logið til um að þurfa að fara á krabbameinslyf, hún hefði þó aldrei sagt það við sig.

„Ég fékk sjokk“

Að lokum bar kona vitni sem hafði átt í þriggja mánaða sambandi við brotaþola. Íris Helga hafi haft samband við hana eftir að hafa sjálf átt í sambandi með manninum. Sagði hún Írisi hafa sagt sér ýmislegt af þeirra samskiptum og spurt sig út í samskipti konunnar við hann. Jafnframt hafi hún beðið sig um að fara og tala við lögreglu ef eitthvað slæmt hafi komið upp.

Sagðist hún hafa svarað að svo hefði ekki verið, hún hefði ekkert haft út á samskipti sín við brotaþola að setja á meðan þau áttu í sambandi.

Konan var einnig spurð út í mynd sem hún hafi tekið af sér og brotaþola á tónleikum sem þau fóru á. Sendi hún Írisi myndina um það leyti sem þær áttu í samskiptum. Það hafi hún gert því þá hafi komið upp minning á Snapchat fyrir tilviljun og henni hafi þótt það skondið.

Næsta dag hafi hún fengið skilaboð frá brotaþola en hann hafði þá fengið myndina senda frá reikningi aðila sem hafði verið að áreita hann. 

„Ég fékk sjokk, það var enginn annar sem hafði aðgang að myndinni,“ sagði konan og að í kjölfarið hafi hún slitið samskiptum við Írisi.

Helga Vala, verjandi Írisar Helgu, spurði konuna frekar út í hverjir hefðu fengið myndina senda. Konan sagðist hafa sent myndina á nokkra vini en þegar verjandi spurði hvort hún myndi eftir því að einhver hefði tekið skjáskot af myndinni sagðist hún ekki geta sagt til um það.

Aðalmálsferð í málinu heldur áfram eftir hádegið.

#beðið #hafa #sig #sögðu #írisi

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262958283d/sogdu-irisi-hafa-bedid-sig-um-ad-lemja-brotathola

📰 Aðrar fréttir

Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
📅 06.11.2026 👁️ 1
Þrír dauðadæmdir fangar teknir af lífi sama daginn – Einn baðst afsökunar rétt fyrir dauða sinn
Þrír dauðadæmdir fangar voru teknir af lífi í Bandaríkjunum í gær, einn í Flórída, annar í Alabama og sá þriðji í Indiana.Slíkt er afar sjaldgæft en þ...
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
📅 06.11.2026 👁️ 1
How match momentum, red cards, and late goals influence live betting on Spanish football
Spanish football always gives us a captivating backdrop for live betting, with matches shifting between slow-built possession and high pressing, amid ...
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Ánægð með að Chrome-bækurnar hafi verið læstar inni í skápum
„Við í Hagaskóla ákváðum í sameiningu, það er að segja kennarar, á síðasta skólaári, að endurhugsa svolítið hvernig við notuðum upplýsingatækni eða tæ...
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
📅 06.11.2026 👁️ 1
Orange weather warnings activated in Tenerife for heavy rain
Tenerife is facing an orange rain warning on Sunday as storm Bruna moves across the Canary Islands, with up to 100 millimetres of rain expected in 12 ...
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Sprengdi krúttskalann og vill ekki búa í græna gímaldinu - Vísir
Svörin leyndu ekki á sér. Gulur og bleikur eru í uppáhaldi en ekki grár eða steinngrár sem einkennir íslenska byggingarlist og bílaflotan hér á landi....
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Stóri glæpurinn sé inn­brotið sjálft - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrotin Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af innbrot...
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
📅 06.11.2026 👁️ 1
Starfsfólki háskólaráðuneytisins fækkar um átta
Stöðugildum innan Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis fækkar um átta með ráðstöfunum sem gripið var til í vikunni.Í skriflegu svari frá ráðun...
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
📅 06.11.2026 👁️ 1
Ráðherra þvertekur fyrir niðurskurð hjá Landbúnaðarháskólanum
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands, sagði í tilkynningu frá skólanum í gær að nauðsynlegt væri að leiðrétta fjármögnun ...
„Við þurfum að laga þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 1
„Við þurfum að laga þetta“
Dagur gegn einelti var haldinn hátíðlegur í Hlíðaskóla. Halla Tómasdóttir forseti Íslands veitti Fjölbrautaskóla Suðurlands hvatningarverðlaun fyrir f...
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að má...
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.Bres...
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að ...
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
📅 06.11.2026 👁️ 2
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
Nútíminn hefur fengið afhent gögn frá Akureyrarbæ sem varpa nýju ljósi á ágreining Helgu Daggar Sverrisdóttur, fyrrverandi kennara við Síðuskóla, og s...
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Mikill eldur braust...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir

„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Rottupungurinn reyndist vera æxli - Vísir

Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotastein...
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áðu...
Stjörnugrís kennir Einari Loga um ástand grísanna í myndskeiðinu
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stjörnugrís kennir Einari Loga um ástand grísanna í myndskeiðinu
Fyrra innbrot Einars Loga Péturssonar í gyltubú Stjörnugríss, 11. maí í vor, olli dýrunum hræðslu, óbætanlegum skaða og dauða og er dýraníð.Innbrotið ...
Íris Helga komin í nýtt nálgunarbann eftir ásókn gegn brotaþolum í vikunni
📅 06.11.2026 👁️ 2
Íris Helga komin í nýtt nálgunarbann eftir ásókn gegn brotaþolum í vikunni
Lögreglan á Suðurnesjum birti Írisi Helgu Jónatansdóttur 12 mánaða nálgunarbann fimmtudaginn 5. nóvember, eftir atvik miðvikudaginn 4. nóvember síðdeg...
Man attacked with machete outside his home in Corralejo
📅 06.11.2026 👁️ 2
Man attacked with machete outside his home in Corralejo
A 25-year-old man has been arrested after allegedly attacking another man with a machete at his home in Corralejo, leaving him with a seven-centimetre...
Faðir Meghan Markle var handtekinn í Flórída í dag grunaður um vörslu barnaníðsefnis
📅 06.11.2026 👁️ 3
Faðir Meghan Markle var handtekinn í Flórída í dag grunaður um vörslu barnaníðsefnis
Thomas Markle eldri, faðir hertogaynjunnar Meghan Markle, hefur verið handtekinn af bandarísku alríkislögreglunni FBI. Frá þessu greinir The New York ...
Kourani beri á­byrgð á sprengjuhótununum - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kourani beri á­byrgð á sprengjuhótununum - Vísir
Opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum hafa borist sprengjuhótanir undanfarna daga. Vísir greindi frá því í gær að Keflavíkurflugvelli hafi bo...
Davíðstíminn: Davíð og frjálshyggjumennirnir kúventu afstöðu sinni til dreifðs eignarhalds á bönkunum
📅 06.11.2026 👁️ 2
Davíðstíminn: Davíð og frjálshyggjumennirnir kúventu afstöðu sinni til dreifðs eignarhalds á bönkunum
Davíð Oddsson og frjálshyggjumennirnir í kringum hann vildu upphaflega passa upp á að eignarhald bankanna eftir einkavæðingu yrði dreift og enginn fen...
Sendimaður Trumps kynnir áætlanir um að endurmóta öryggismál í Evrópu í samráði við Rússland
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sendimaður Trumps kynnir áætlanir um að endurmóta öryggismál í Evrópu í samráði við Rússland
Sendimaður Trumps kynnir áætlanir um að endurmóta öryggismál í Evrópu í samráði við Rússland Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Jared Kushne...
Markle hand­tekinn fyrir vörslu barnaníðsefnis - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Markle hand­tekinn fyrir vörslu barnaníðsefnis - Vísir
Fjölmiðlar vestanhafs og á Bretlandseyjum greina frá handtökunni.  Fjöldi alríkisfulltrúa tók þátt í aðgerðunum í borginni Lakeland, sem er skammt frá...
Segist starfa einn og reiknar með sekt - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Segist starfa einn og reiknar með sekt - Vísir
Einar Logi birti í gær myndband á Instagram af innbroti sínu í svínabú hjá Stjörnugrís. Forstjóri hjá Stjörnugrís segir myndbandið ekki gefa rétta myn...
Snorri Másson gagnrýnir túlkun Samfylkingarinnar á kosningasigri demókrata – segir brottfararstöðina afhjúpa veikleika ríkisstjórnarinnar
📅 06.11.2026 👁️ 3
Snorri Másson gagnrýnir túlkun Samfylkingarinnar á kosningasigri demókrata – segir brottfararstöðina afhjúpa veikleika ríkisstjórnarinnar
Snorri Másson gagnrýnir túlkun Samfylkingarinnar á kosningasigri demókrata – segir brottfararstöðina afhjúpa veikleika ríkisstjórnarinnar Fréttin6. nó...
Hafi brotist aftur inn til að geta dregið upp verri mynd - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hafi brotist aftur inn til að geta dregið upp verri mynd - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrot í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af...
Kourani á bak við sprengjuhótanirnar
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kourani á bak við sprengjuhótanirnar
Sprengjuhótanir sem hafa borist ýmsum ríkisstofnunum og fyrirtækjum hafa verið raktar til Sýrlands. Þær eru allar sendar úr sama netfangi sem Mohamed ...
Segir fölsuð gögn hluta af greinargerð Írisar Helgu
📅 06.11.2026 👁️ 3
Segir fölsuð gögn hluta af greinargerð Írisar Helgu
Fjölskyldumeðlimur brotaþola í málinu gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur sagði fölsuð gögn hafa verið í greinargerð sem hún lagði fyrir dóm. Aðalmeðferð ...
Faðirinn laus úr haldi vegna manndráps í Breiðholti
📅 06.11.2026 👁️ 2
Faðirinn laus úr haldi vegna manndráps í Breiðholti
Faðir sem handtekinn var í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti aðfaranótt sunnudags er laus úr haldi.Þetta staðfestir Guðmundur St. Ragnars...
Brand's barrister refers himself to regulator after report he confronted journalist
📅 06.11.2026 👁️ 2
Brand's barrister refers himself to regulator after report he confronted journalist
Ian Winter allegedly confronted a reporter outside court who had investigated the comedian.
Íslenska sumargotssíldin sækir austur í haf og blandast norsk-íslenskri síld
📅 06.11.2026 👁️ 2
Íslenska sumargotssíldin sækir austur í haf og blandast norsk-íslenskri síld
Segja má að vertíðarskil séu hjá síldveiðiflotanum. Veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum fer að ljúka og þá hefjast veiðar á íslenskri sumargotssí...
New wave of bomb threats hit European airlines
📅 06.11.2026 👁️ 3
New wave of bomb threats hit European airlines
No link has been established between the threats against the airlines and those against the media outlets.
Mildar alla dauða­dóma í Kali­forníu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Mildar alla dauða­dóma í Kali­forníu - Vísir
Í opnu bréfi sem ríkisstjórinn birti í gær segir hann að eftir nærri því þrjátíu ára störf við opinbera stjórnsýslu hafi Newsom orðið þeirrar skoðunar...
AI stocks bounce back after trillions wiped from market values
📅 06.11.2026 👁️ 2
AI stocks bounce back after trillions wiped from market values
Investors had been selling off tech shares in part due to concerns the Democrat election victory would mean slower AI development.
Afhjúpar hræðilega aðferð til að aga börnin sín
📅 06.11.2026 👁️ 3
Afhjúpar hræðilega aðferð til að aga börnin sín
Sænski leikarinn Bill Skarsgård hefur hrætt milljónir kvikmyndagesta með hlutverkum sínum sem dansandi trúðurinn Pennywise í IT og sem greifinn Orlok ...
Sér sárlega eftir að hafa hafnað skrýtnu hlutverki: „Ég hugsaði of mikið um þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sér sárlega eftir að hafa hafnað skrýtnu hlutverki: „Ég hugsaði of mikið um þetta“
Bandaríski leikarinn Matt Damon er í forsíðuviðtali GQ Men of the Year sem kom út í gær.
Is it the end of the road for Tesla's Cybertruck?
📅 06.11.2026 👁️ 3
Is it the end of the road for Tesla's Cybertruck?
The car company's CEO Elon Musk has said production will halt in Texas, to focus on the firm's self-driving Cybercabs.
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“ Og setjist svo niður með hjólabúum á Sævarhöfða og leysið málið!“segir Kolbrún Baldursdóttir...
Ætlaði að gera vel við sig daginn fyrir afmælið – Allt fór úr böndunum eftir að óvæntur grunur vaknaði
📅 06.11.2026 👁️ 2
Ætlaði að gera vel við sig daginn fyrir afmælið – Allt fór úr böndunum eftir að óvæntur grunur vaknaði
Karlmaður sem ætlaði að gera vel við sig í tilefni afmælis síns og pantaði vændiskonu á gistiheimili í Reykjavík hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðs...
Jón Trausti svarar Hannesi: „Hvorki skrifuð af spjallmenni né skjallmenni“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Jón Trausti svarar Hannesi: „Hvorki skrifuð af spjallmenni né skjallmenni“
Jón Trausti Reynisson, annar höfunda nýrrar bókar um Davíð Oddsson, vísar alfarið á bug fullyrðingum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að bókin sé ...
Burnham says he was not aware of Brand's 'horrific' crimes
📅 06.11.2026 👁️ 3
Burnham says he was not aware of Brand's 'horrific' crimes
The prime minister told the BBC that Labour politicians courting the comedian a decade ago had not been aware of his crimes.
Trölli upp­seldur út árið - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Trölli upp­seldur út árið - Vísir
Mikil eftirvænting ríkir eftir jólasöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum! sem verður frumsýndur á morgun. Björgvin Franz Gíslason fer þar með hlutverk...
Upp­selt út árið og sýningar næsta leik­árs komnar í sölu - Vísir

Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu skilar sér ekki í vasa Íslendinga
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu skilar sér ekki í vasa Íslendinga
Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu hefur ekki skilað sér í vasa íslenskra neytenda, segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaei...
Faðirinn laus úr haldi - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Faðirinn laus úr haldi - Vísir
Faðirinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald seint á sunnudaginn til 9. nóvember en hefur nú verið látinn laus úr haldi þar sem rannsóknarhagsmunir hafa v...