Birna Viðarsdóttir á bænum Norður-Hvoli í Mýrdalshreppi lá nýlega fjóra daga á spítala í einangrun með uppköst og niðurgang og með næringu og tvær tegundir af sýklalyfi í æð.
Ástæðan er sú að hún smitaðist af bakteríunni Campylobacter eftir að hafa haldið á stormmávsunga en Birna er mikil áhugamanneskja um fugla og allt sem að þeim snýr.
„Ég er nú búin að jafna mig en læknarnir á sjúkrahúsinu vissu ekki hvernig ég hefði smitast, engin skýring. En þegar ég fór til afleysingalæknisins í Vík kveikti hann á því hvað hefði gerst og spurði, „Hefur þú verið nálægt mávfuglum nýlega?”, og ég var fljót að svara, jú, ég hef verið að vesenast með stormmávsungana sem voru í hreiðri á gömlu haugsugunni hjá okkur,” segir Birna.
„Ég er fegin að það kom skýring og nú mun ég passa mig betur og hvet fólk til að þvo sér vel um hendurnar ef það er að snerta fugla, allavega máva,” segir Birna.