Verkið tengist gerð Hvammsvirkjunar og er unnið í samstarfi Vegagerðarinnar og Landsvirkjunar. Vegagerðin býður það út og hefur umsjón með því. Landsvirkjun greiðir 40 prósent kostnaðar en Vegagerðin 60 prósent. Samkomulag er um að Landsvirkjun leggi út fyrir öllum kostnaði en Vegagerðin greiði sinn hluta síðar, eða þegar fjárveiting fæst á samgönguáætlun og fjárlögum.
Kærumál vegna virkjunarinnar hafa hindrað framkvæmdir árum saman. Eftirlitsþáttur brúarsmíðinnar og vegagerðarinnar var þó boðinn út í vor en með fyrirvara. Þá skýrði verkefnisstjóri Vegagerðarinnar frá því að beðið yrði með framkvæmdaútboð þar til kærumál yrðu útkljáð og kærufrestir útrunnir.
Í frétt Stöðvar 2 í nóvember 2024, þegar búist var við því að stutt væri í útboð, var sýnt myndband Vegagerðarinnar af útliti mannvirkjanna og staðsetningu þeirra:
Til stóð að bjóða verkið út haustið 2023 en því var þá slegið á frest um óákveðinn tíma eftir að virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar var fellt úr gildi. Oddvitar sveitarfélaganna beggja vegna Þjórsár vonuðust þá til að brúarsmíðin tefðist ekki of mikið, eins og lesa má um í þessari frétt:
Sumarið 2009 vonuðust sunnlenskir ráðamenn raunar eftir útboðinu þá um haustið, eins og rifja má upp í þessari sautján ára gömlu frétt Stöðvar 2:
Í útboðsauglýsingu Vegagerðarinnar kemur fram að brúin verði 204 metra löng og staðsett norðaustan við Búðafoss. Vegna fiskgengdar séu skorður settar á vinnu í farvegi Þjórsár sem hafi áhrif á byggingu varnargarða. Búðafossvegur verði 7,4 kílómetra langur en hann tengi Þjórsárdalsveg í Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Landveg í Rangárþingi ytra.
Á gatnamótum Þjórsárdalsvegar og Búðafossvegar verður gert hringtorg. Verkinu fylgja jafnframt tengivegir og heimreiðar á fjórum stöðum, alls um 2,6 kílómetrar. Sett verði upp tvenn reiðgöng, ræsi og búfjárgöng.
Ekki kemur fram í útboðsauglýsingunni hvenær verklok séu áætluð. Í fyrri fréttum Vísis hefur þó verið skýrt frá því að verktími sé áætlaður um þrjú ár. Í frétt síðla árs 2024 kom fram að heildarkostnaður við smíði brúarinnar og gerð Búðafossvegar væri áætlaður á bilinu þrír til fjórir milljarðar króna.