Eldur kviknaði í ruslagámi við blokk í Hátúni í Reykjavík í kvöld. Slökkviliðsmenn á einum dælubíl slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru sendir á staðinn og þeir slökktu hratt í eldinum.
Að sögn varðstjóra stafaði engin hætta af eldinum.
Þá voru liðsmenn slökkviliðsins sendir af stað í kvöld til að bregðast við minniháttar vatnsleka.