Sjaldgæfur albínó-buffall í Bangladess, sem hlotið hefur viðurnefnið Donald Trump verður ekki fórnað við Eid al-Adha hátíðarhöldin eins og til stóð.
Yfirvöld ákváðu að grípa inn í eftir að dýrið vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum og varð að vinsælu umtalsefni um land allt.
Buffalinn, sem vegur um 680 kíló, hafði verið seldur til fórnar í tengslum við hina árlegu íslömsku hátíð. Eftir að myndir og myndskeið af dýrinu fóru í dreifingu á netinu streymdu gestir að búgarði eiganda þess í borginni Narayanganj, skammt frá höfuðborginni Dhaka, til að berja það augum.
Eigandinn, bóndinn Ziauddin Mridha, segir að nafnið hafi verið gefið af væntumþykju. Yngri bróðir hans hafi tekið eftir því að ljós hárbrúskur á höfði dýrsins hafi minnt á hárgreiðslu Donalds Trump Bandaríkjaforseta og því hafi viðurnefnið fest við það.
„Það varð mjög vinsælt og margir komu hingað til að sjá það,“ sagði Mridha í samtali við indversku fréttastofuna ANI.
Samkvæmt eigandanum er buffalinn óvenju blíður og krefst mikillar umönnunar. Hann þarf regluleg böð og er fóðraður oftar en algengt er.
Fréttastofan Reuters greinir frá því að innanríkisráðherra Bangladess, Salahuddin Ahmed, hafi fyrirskipað að dýrinu yrði hlíft. Kaupandinn mun fá endurgreitt og buffalinn verður fluttur í þjóðardýragarðinn í Dhaka.