Von er á votu veðri í landinu í dag. Samkvæmt veðurspá verður rigning suðaustantil fram eftir degi og stöku skúrir annars staðar. Skúrir víða um land síðdegis, og sunnan- og suðaustanátt upp á 3 til 10 metra á sekúndu.
Þá verði hiti á bilinu 8 til 16 stig og hlýjast á Norðausturlandi.
Á morgun verði hæg breytileg átt, en norðlæg átt upp á 3-8 metra á sekúndu undir kvöldið. Rigning af og til á austanverðu landinu en stöku skúrir í öðrum landshlutum og sérstaklega síðdegis. Hiti á bilinu 10 til 15 stig.