Þrettán manns, sem búa í hjólhýsum við Sævarhöfða, fá tvo mánuði til að finna sér nýjan samastað. Borgarfulltrúar minnihlutans segja miður að ekki hafi verið leitað annarra lausna.
„Við fengum bréf þess efnis að 1. nóvember ætti að taka af okkur rafmagnið, það á að skrúfa fyrir vatnið og loka fyrir húsnæði þar sem við höfum aðgang að þvottavél og þurrkara,“ segir Geirdís Hanna Kristjánsdóttir, íbúi í hjólhýsabyggðinni og gjaldkeri Samtaka hjólabúa.
Og þar með verður punkturinn settur við búsetu í hjólhýsabyggðinni sem hefur verið við Sævarhöfða í um þrjú ár, en hún var áður á tjaldsvæðinu í Laugardal. Þar búa nú 13 manns í tólf hýsum.
Geirdís Hanna segir að þeim hafi ekki boðist önnur búseta. „Nei, það hefur enginn frekar en fyrri daginn frá borginni haft samband við okkur,“ segir hún.
Hafið þið beðið um að ykkur verði fundin önnur búseta? „Já.“
Hjólahýsabyggðin hefur verið bitbein í borgarkerfinu um árabil – og var enn og aftur til umræðu á síðasta fundi borgarráðs að frumkvæði fulltrúa minnihlutans.
„Það er ekki „optimal“ að vera með svona byggð, en þetta fólk fer ekkert, það þarf að leysa þessi mál,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, sem á sæti í borgarráði.
Í sama streng tekur Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í borgarstjórn og áheyrnarfulltrúi í borgarráði. „Mér þykir miður að það hafi ekki átt sér stað neitt samtal við hjólabúana um neina aðra lausn.“
Segir búsetuna ekki löglega
Spurð hvort búseta sem þessi sé lögleg, segir Geirdís svo ekki vera. „Það er ekki löglegt að búa á þennan hátt, nei.“
Ef þessi búseta er ekki lögleg, af hverju ætti borgin þá að leyfa hana? „Borgin var búin að leigja okkur land og við vorum búin að leggja fullt, fullt af vinnu í að leita tilboða í alls konar til að við gætum flutt á svæðið og gert okkur heimili þar.“
Hafa ekki fundið sér samastað
Pétur segir að um sé að ræða hóp sem vilji ýmissa hluta vegna ekki búa í íbúðum. „Þetta fólk hefur ekki fundið sér samastað í þessum hefðbundnu búsetuúrræðum sem við höfum. Og það eru alls konar ástæður fyrir því.“
Spurð hvernig hún teldi að best hefði verið að leysa málið segir Silja Sóley að kanna hefði átt aðra möguleika. „Það hefði annaðhvort verið hægt að athuga að fá þau aftur á tjaldsvæðið í Laugardalnum eða athuga hvort það væri einhver önnur hentug staðsetning.“
Bíða svara frá ráðherra
Íbúarnir áttu nýverið fund með Ragnari Þór Ingólfssyni félags- og húsnæðismálaráðherra vegna málsins að sögn Geirdísar Hönnu sem segir að nú sé beðið eftir svörum.
Spurð um líðan íbúanna segir hún hana ekki góða. „Við erum öll að fara á límingunum af kvíða og við erum eðlilega mjög reið yfir þessu.“