Danska lögreglan veit ekki hvaða ástæður liggja að baki árásinni í dag. Hún hefur þó gefið það upp að einstaklingurinn sem grunaður er um árásina er karlmaður.
Fjölmennt lið lögreglunnar á Norður-Jótlandi er enn starfandi á vettvangi.
„Við verðum að rannsaka alla atburðarásina. Við vitum því enn ekki nákvæmar ástæður árásarinnar og hvað liggur henni að baki,“ er haft eftir Claus Danø, lögreglufulltrúa hjá lögreglunni á Norður-Jótlandi, í umfjöllun DR.
Einn almennur borgari lést í árásinni að því er fram kemur í frétt DR.
Maðurinn sem grunaður er um verknaðinn er alvarlega slasaður og liggur á sjúkrahúsi.
Ástand lögreglumannsins sem slasaðist er stöðugt.
Ýmislegt er enn á reiki hvað skotárásina varðar.
Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um líðan þeirra sem særðust, þar á meðal árásarmannsins. Samkvæmt lögreglu eru áverkar þeirra alvarlegir.
Óljóst er hvers vegna skotið var á lögregluna og hver ástæðan að baki árásinni var. Þar að auki hefur ekki komið fram hver grunaður gerandi er né hvort fleiri hafi verið handteknir.
Í tilkynningu lögreglunnar á Norður-Jótlandi segir að á svæðinu sé mikill reykur og hafi lögregla upphaflega verið kölluð til vegna reyksins.
Fjölmennt lið lögreglu, slökkviliðs og sjúkraliða er á vettvangi. Sérsveit hefur einnig verið kölluð til.
Þá hafa borgarar verið beðnir um að halda sig fjarri á meðan aðgerðir standa yfir.
Samkvæmt fyrirtækjum á svæðinu heyrðust skothljóð nærri Virkelyst 12 Nørresundby norðan við Álaborg upp úr hádegi í dag.
Lögregla var kölluð til og hóf umfangsmikla rannsókn og björgunaraðgerðir, að því er fram kemur í tilkynningu.
Árásarmaðurinn hóf skothríð þegar lögreglu bar að garði. Lögregla svaraði með skotum og varð gerandi fyrir skoti. Að auki var lögreglumaður skotinn og einn almennur borgari.