Dómsmálaráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp til að greina gildandi lög og skilyrði fyrir veitingu íslensks ríkisborgararéttar. Í tilkynningu um skipunina kemur fram að markmiðið með henni sé að fá heildstæða yfirsýn yfir þróun umsókna, framkvæmd við veitingu ríkisborgararéttar og hvort ástæða sé til breytinga á lagaumhverfi eða verklagi. Starfshópurinn á að skila ráðherra tillögum sínum eigi síðar en 1. október.
„Að fá ríkisborgararétt eru forréttindi. Að fá íslenskan ríkisborgararétt er og á að vera stór stund í lífi þeirrar manneskju sem hann fær,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í tilkynningu um málið.
Starfshópinn skipa Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir, Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir og Vilhjálmur Hilmarsson sem jafnframt er formaður starfshópsins. Tveir starfsmenn ráðuneytisins verða hópnum innan handar samkvæmt tilkynningu Stjórnarráðsins.
Samkvæmt tilkynningu mun hópurinn leggja áherslu á að greina gildandi skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar og bera þau saman við sambærileg skilyrði á hinum Norðurlöndunum. Við vinnu hópsins verði höfð hliðsjón af þeim markmiðum sem nefnd eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að gæta skuli samræmis við reglur nágrannaríkja á sviði útlendingamála, eftir því sem við á, og tryggja að lagaumhverfi og framkvæmd séu skýr, skilvirk og í samræmi við þær kröfur sem ber að gera til veitingar ríkisborgararéttar.
Starfshópnum verður jafnframt falið að meta hvort ástæða sé til breytinga og þá að hvaða leyti, greina helstu áskoranir í málaflokknum og koma með tillögur að úrbótum á lagaumhverfi og stjórnsýslu.