Samgöngustofa metur hvort bregðast þurfi við niðurstöðum úr þreytukönnun hjá flugmönnum. Félag íslenskra atvinnuflugmanna lagði könnunina fyrir flugmenn Icelandair. 56% þeirra sögðust hafa sofnað við störf um borð í sumar.
Könnunin var lögð fyrir alla flugmenn Icelandair í fyrri hluta ágúst. 508 flugmenn, tæplega 80% félagsmanna, svöruðu. Þeir voru spurðir um reynslu sína undanfarna þrjá mánuði. 90% telja vinnuálag hafa neikvæð áhrif á flugöryggi og þriðjungur treysti sér illa til þess að segjast ekki ætla að fljúga.
Níu af hverjum tíu töldu vinnuálag og vaktafyrirkomulag ekki ganga upp með tilliti til þreytu. Mikill munur reyndist á svörum eftir flugvélaflotum. Þreyta sem bitnaði á árvekni í starfi var mest meðal flugmanna Boeing 737-flotans.
Meta hvort fylgja þurfi málinu eftir
Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri Samgöngustofu segir stofnunina ekki geta sagt til um alvarleika þessara niðurstaðna að svo stöddu.
„Þessi könnun og niðurstöður hennar voru bara að berast okkur núna í lok vinnudags í gær. Þannig að á þessu stigi er ekki rétt að tjá sig um efnisatriðin. Niðurstöðurnar verða rýndar og það verður metið hvort það sé tilefni til að að fylgja málinu eftir innan þess hlutverks sem Samgöngustofa gegnir.“
Icelandair telur ótímabært að ræða niðurstöðurnar í fjölmiðlum
Fjallað var um niðurstöðurnar í Kastljósi í gærkvöld. Hvorki forsvarsmenn FÍA né Icelandair gáfu kost á viðtali um könnunina. Icelandair sendi þó frá sér yfirlýsingu þar sem sagði að öryggi farþega og starfsfólks væri ávallt í forgangi.
Kjarasamningur við FÍA gengi í mörgum tilfellum lengra en reglugerðir um hvíld og vinnustundir áhafna. FÍA hefði kynnt Icelandair niðurstöður könnunarinnar og unnið væri að tillögum og úrbótum.
Því væri ótímabært að ræða þær efnislega í fjölmiðlum. Kjaraviðræður flugmanna og Icelandair standa enn yfir.