„Það er ekki óalgengt að þetta gerist á þessu svæði, svona lítil þyrping af skjálftum,“ segir Ingibjörg Andrea Bergþórsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
Ingibjörg segir ekki hægt að segja til um hvort meira fylgi í kjölfarið.
„Það er ekki alveg hægt að segja til um það. Svona litlar hrinur geta dáið út eða það kemur nýr skjálfti og virknin tekur við sér á ný. Tíminn verður bara að leiða það í ljós.“
Ingibjörg segir að öðru leyti rólegt yfir landinu.