Jarðskjálfti af stærðinni 4,5 varð vestur af Hengli klukkan 13:45. Hann fannst meðal annars vel í Hveragerði og á Selfossi, á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi.
Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir upptökin hafa verið vestur af Húsmúla í vesturhluta Hengilsins. Jarðskjálftahrina hófst snemma í gærmorgun og skjálftarnir orðnir um 600 talsins. Þetta er stærsti skjálftinn sem orðið hefur í hrinunni.
Eftirskjálfti af stærðinni 3,8
Nokkrir eftirskjálftar hafa orðið, sá stærsti 3,8 að stærð, skjálftinn reið yfir sautján mínútur yfir fjögur. Búast má við eftirskjálftum áfram í dag og á morgun, og jafnvel næstu daga.
Elísabet segir að skjálftar af þessari stærð í Hengli ekki svo óvenjulega, en að áfram verði fylgst vel með.
Fannst vel í Hveragerði
Erlingur Gunnarsson, íbúi í Hveragerði, fann vel fyrir skjálftanum og segist hafa tuskast til þegar skjálftinn reið yfir.
„Glerskápurinn glamraði mikið og hurðirnar á honum opnuðust, svo hætti skjálftinn bara en það glamraði mikið.“
Erlingur segir að óþægilegt sé að að finna fyrir svo stórum skjálftum, einn snarpur hafi sömuleiðis riðið yfir í gær.
Fréttin verður uppfærð.