God of War er meðal vinsælustu tölvuleikjasería allra tíma og fjallar um spartneska stríðsmanninn Kratos sem þarf að kljást við ýmsar kynjaverur og guði úr grískri og norrænni goðafræði. Því fögnuðu eflaust margir þegar tilkynnt var um sjónvarpsþætti upp úr leikjunum fyrir nokkrum árum.
Í byrjun árs bárust fréttir af leikhópi seríunnar þar sem kom fram að Ryan Hurst, Callum Vinson, Mandy Patinkin og Ólafur Darri Ólafsson væru í aðalhlutverkum. Bandaríski leikarinn Ryan Hurst sem er þekktastur fyrir að leika í mótorhjólaþáttunum Sons of Anarchy (2008-12) hafði lagt mikið á sig fyrir aðalhlutverkið, bætt á sig tæpum tuttugu kílóum af vöðvum og varið mörgum mánuðum á tökustað.
Svo gerðist það í júní síðastliðnum að Hurst var að framkvæma áhættuatriði og reif á sér annan tvíhöfðann. Tökur á þáttaröðinni voru samstundis stöðvaðar og hafa skiljanlega ekki enn farið aftur af stað.
Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs hefur Hurst þegar lagst undir skurðhnífinn vegna meiðslanna en ekki liggur fyrir hvað hann verður lengi að jafna sig. Almennt taka slík meiðsli um fjóra til sex mánuði og jafnvel enn lengri tími til að ná fyrri styrk. Af þeim sökum tóku framleiðendur þáttaraðarinnar þá ákvörðun að endurskipa í hlutverk Kratosar og búist við því að tökur hefjist á ný í október.
Serían fjallar um feðgana Kratos og Atreus (Vinson) sem halda í ferðalag til að dreifa ösku Faye, móður Atreusar og eiginkonu Kratosar. Á ferðalaginu kynnast þeir feðgar betur og rekast á guði á borð við Óðinn (Patinkin) og Þór (Ólafur Darri).
Tökur fyrir seríuna hófust í Vancouver í febrúar og á að taka þar upp tvær þáttaraðir í einu. Þegar var búið að taka upp fjóra þætti þegar Hurst slasaðist en væntanlega verður að skjóta þá upp á nýtt.